Meintur ofbeldismaður sýknaður - fórnarlamb þorði ekki að bera vitni 31. mars 2011 17:12 Ofbeldi. Maðurinn fór verulega illa út úr árásinni. Myndin er sviðsett.
Hæstiréttur Íslands snéri dómi Héraðsdóms Reykjavíkur þar sem karlmaður var sakfelldur fyrir harkalega líkamsárás í janúar 2009. Maðurinn var þá dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir árásina, sem þótti ófyrirleitin og afar ofbeldisfull. Sá sem fyrir árásinni varð sagði í skýrslu að hinn sýknaði hefði ráðist á sig með höggum og spörkum, slegið hann með hnúajárni nokkrum sinnum í andlit og í nokkur skipti sparkað í höfuð hans þar sem hann lá á gólfinu, með þeim afleiðingum að hann hlaut meðal annars nefbrot, tannbrot, mar, bólgur og skurði á höfði og beinbrot á fingri. Talið er að meinti árásamaðurinn hafi ætlað að rukka fíkniefnaskuld. Þegar kom að því að rétta í málinu í Héraðsdómi Reykjavíkur neitaði fórnarlambið að bera vitni. Var þá stuðst við skýrslu lögreglunnar sem tekin var af manninum eftir að hann varð fyrir árásinni. Í niðurstöðu Hæstaréttar sagði meðal annars: „Við meðferð málsins fyrir héraðsdómi neitaði vitnið A að bera um málsatvik. Í forsendum hins áfrýjaða dóms kemur fram að vitnið hafi að vísu enga skýringu gefið á þessum umskiptum sínum, en ekkert annað geti komið til greina en vitnið hafi óttast það sem gæti hlotist af því að standa við fyrri skýrslugjöf." Hæstiréttur gerir einnig alvarlegar athugasemdir við rannsókn lögreglunnar á vettvangi. Ber þar helst að nefna að hún yfirgaf vettvang og kvaðst hafa skilið hann eftir óvarinn allt þar til sá lögreglumaður er annast átti vettvangsrannsókn kom þangað nokkrum klukkustundum síðar. Ekki eru upplýsingar um hvort einhver hafi farið inn í læst húsið á þessum tíma. Af myndum sem teknar voru á vettvangi sáust einnig augljóslega nokkur skóför í blóði á gólfi. Engin rannsókn fór fram á þessum skóförum eins og skylt er í lögum. Hinn sýknaði var handtekinn í byrjun febrúar 2009 og var hann færður í fangageymslur lögreglunnar. Þar hafði maðurinn farsíma með sér í fangaklefann og hringdi þar nokkrum sinnum úr honum, meðal annars í vitni sem hann taldi geta tryggt fjarvistarsönnun sína. Þá var ósamræmi í gögnum um rannsókn fingrafara á glösum sem hald var lagt á. Í ljósi ofantalinna atriða þá sýknaði Hæstiréttur manninn sem héraðsdómur hafði áður dæmt í tveggja og hálfs árs fangelsi.
Mest lesið Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Innlent Viðurkennir mistök við skipan Jafnréttissjóðs Innlent Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Erlent „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Innlent Þurftu að kyrrsetja flugvél vegna veggjalúsa Erlent Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Innlent „Maður undirbýr sig fyrir það versta“ Innlent Rannsaka dauðsfall í rússíbana í Six Flags Erlent Fleiri fréttir Fór úr bílnum og hljóp undan lögreglu Enn versnar spáin með nýjum viðvörunum Bandero leitar skjóls í Reykjavík Air Atlanta vinnur áhættumat vegna árása Húta Baráttan um varaforsetana: Valdabrölt eða samsæriskenningar? Salmonella greindist í kryddi Kokku Frumvarp um Ríkisútvarp gagnrýnt harðlega í samráðsgátt Stjórnarandstaðan segir „forfallavírus“ ganga meðal ráðherra Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Pawel tekur við af Sigmari sem þingflokksformaður Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Leita ökumanns sem ók á dreng á reiðhjóli „Þá tökum við auðvitað tillit til þess og hlustum“ Mögulegar rafmagnstruflanir í stórhríðinni Lægðin hefur alla burði til að verða söguleg Viðurkennir mistök við skipan Jafnréttissjóðs Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína „Maður undirbýr sig fyrir það versta“ Synjað um heimilisuppbót vegna sameiginlegrar þvottavélar og snyrtingar Vona að ágreiningur liti ekki þing ASÍ Háskólarnir verði betur tengdir með breyttri strætóleið Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Ákveðið álag sem maður sé undir án þess að fatta það Undirmönnun hjúkrunarfræðinga tengist dánartíðni sjúklinga Sinntu útkalli þar sem grindverk hafði fokið fyrir akbraut Dómurinn segi ekki alla söguna Yfir sjötíu prósent óánægja með Ingu Sæland Leita enn að einum eftir alvarlega líkamsárás Höfuðpaur Reykholtsmálsins fær átta ára dóm Sjá meira