Wladimir Klitschko: Haye er heigull Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 10. júní 2010 12:30 Wladimir Klitschko og David Haye. Nordic Photos / Bongarts
Hnefaleikakappinn Wladimir Klitschko hefur nú svarað David Haye, Bretanum kokhrausta, fullum hálsi og segir hann vera heigul. Til stóð að þeir myndu mætast í hringnum síðasta sumar en Haye þurfti að hætta við vegna bakmeiðsla. Haye hefur þó verið duglegur við að láta þá Klitschko-bræður, Wladimir og Vitali, heyra það en Wladimar svaraði fyrir sig í viðtali við Ring-tímaritið. „Ég vil frekar berjast við David en Vitali," sagði Klitschko. „Vitali vill líka berjast við hann. David Haye hefur vælt undan mér og hann hefur vælt undan bróður mínum. Hann hefur gagnrýnt allt það sem ég og bróðir minn höfum gert." „Ég hef áður sagt að ég vilji breyta andliti Haye í pítsu. Nú vil ég breyta því í pítsu með pepperoni, spægipylsu og tómatsósu," bætti Wladimir við. „Ég er 34 ára gamall og finnst ég vera á hátindi ferilsins. Ég ætla að halda áfram og hef ekkert ákveðið hvenær ég muni hætta. Ég hef heyrt að David Haye ætli að hætta þegar hann verður 31 árs - af því að hann er heigull." „Ég mun halda áfram í boxi eins lengi og ég hef áhuga á íþróttinni."
Box Mest lesið Liverpool má ekki taka á móti Real Madrid í Meistaradeildinni Fótbolti Dönsk landsliðsstjarna dæmd Fótbolti Ótrúlega ósáttur við Val: „Hafa skilið mann eftir einan í myrkrinu“ Handbolti Hundrað metra met Bolt „fallið“ Sport Golfáhrifavaldar í klandri vegna umdeildrar auglýsingar Golf Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Enski boltinn Heiðursmannasamkomulag var svikið: „Kom okkur á óvart“ Handbolti Guðjón Valur framlengir við Gummersbach Handbolti Raheem Sterling ákærður Enski boltinn Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Enski boltinn Fleiri fréttir Serena Williams snéri aftur og lék með Alcaraz Sprungið dekk í Þakgili eyðilagði úrslitaleik HM Dagný orðin sendiherra West Ham Ótrúlega ósáttur við Val: „Hafa skilið mann eftir einan í myrkrinu“ Apollon - FH | Fyrsti Evrópuleikur FH „Eigum að gera mikið betur í þessu og vitum það manna best“ UEFA hætt við sniðgöngu og evrópskar stelpur mega spila Golfáhrifavaldar í klandri vegna umdeildrar auglýsingar Raheem Sterling ákærður Liðsfélagi Alberts kominn í stríð við félagið Liverpool má ekki taka á móti Real Madrid í Meistaradeildinni Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Guðjón Valur framlengir við Gummersbach Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Dönsk landsliðsstjarna dæmd Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Heiðursmannasamkomulag var svikið: „Kom okkur á óvart“ Pirraður Ronaldo tekinn af velli og liðinu gekk betur einum manni færri Hátt hlutfall heilaskaða hjá látnum leikmönnum Dagskráin í dag: Íslensk lið í Evrópukeppni Hundrað metra met Bolt „fallið“ Bruno Fernandes bestur að mati leikmanna Dramatík í undankeppni Meistaradeildarinnar Afturelding í vænlegri stöðu á toppnum Forest fyrsta úrvalsdeildarliðið úr leik í deildarbikarnum Forest tilbúið að greiða 50 milljónir fyrir Delap Reese rífur í sig metin Norður-Írar draga stuðning sinn við Infantino til baka Sjá meira