Guðmundur hannar fyrir GK 6. desember 2010 12:00 Guðmundur Jörundsson fatahönnunarnemi mun hanna nýja herrafatalínu fyrir verslunina GK Reykjavík. fréttablaðið/valli
Guðmundur Jörundsson mun hanna klassísk hversdagsföt fyrir verslunina GK. Hann verður þó áfram yfirhönnuður hjá Kormáki & Skildi. Guðmundur Jörundsson fatahönnuður hefur verið ráðinn til að hanna nýja herrafatalínu fyrir tískuverslunina GK Reykjavík. Guðmundur lætur þó ekki af störfum sem yfirhönnuður Herrafataverslunar Kormáks & Skjaldar heldur mun hann sinna báðum verkefnum. „Ég er á lokaári mínu í fatahönnun í LHÍ núna og verkefnið fyrir GK Reykjavík fer í raun ekki af stað fyrr en ég er búinn í skólanum í vor. Línan fyrir GK verður allt öðruvísi en sú sem ég hannaði fyrir Kormák & Skjöld. Fötin verða klassískari hversdagsföt en ég mun samt reyna að setja mitt mark á þau," útskýrir Guðmundur, en þess má geta að Ása Ninna Pétursdóttir og Guðmundur Hallgrímsson keyptu nýverið verslunina GK Reykjavík. Fyrsta fatalína Guðmundar fyrir Kormák & Skjöld var frumsýnd í síðustu viku. Mörg þekkt andlit voru fengin til að sýna flíkurnar og ber þar helst að nefna menn á borð við alþingismanninn Guðmund Steingrímsson, hárgreiðslumanninn Karl Berndsen og plötusnúðinn Jón Atla Helgason. Það hlýtur að teljast vel af sér vikið að vera ekki útskrifaður úr fatahönnun en samt kominn með tvo samninga, en Guðmundur gerir lítið úr því. „Ætli þetta sé ekki fyrst og fremst heppni. Líka það að ég hef einbeitt mér að herrafatatísku sem aðrir hafa ekki sinnt neitt sérstaklega hingað til," segir Guðmundur sem hefur í nægu að snúast þessa dagana. sara@frettabladid.is
Mest lesið Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Lífið Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Lífið Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Lífið Laufey Lín sló í gegn á Coachella Tónlist Britney farin í meðferð Lífið Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Lífið Mesta áskorunin að greinast með hryggskekkju Lífið „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Lífið Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Lífið Ekki er allt sem sýnist í Dimmu Tónlist Fleiri fréttir „Litlu hlutirnir gefa lífinu merkingu“ Mesta áskorunin að greinast með hryggskekkju Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Britney farin í meðferð Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Krakkatía vikunnar: Skoffín, geitur og jarðarber Allir og amma þeirra í bókaklúbb Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Tónlist sem tekur á skömm og ótta með nokkrum blótsyrðum Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Mildari og þolinmóðari við sjálfa sig eftir greininguna Fréttatía vikunnar: Bó, vatn og vopnahlé Leitaði upprunans og fékk óvænta frænku í heimsókn Páll Edwald og Selma Eir trúlofuð „Er ég að klikka strax í 50?“ „Maður þarf að gera alla hluti upp“ Umdeildi brautryðjandinn Afrika Bambaataa allur Lærði að lifa lífinu upp á nýtt eftir alvarleg veikindi Sjarmatröllið sem setti popptónlist í öndvegi Halla gerir undantekningu vegna andlátsins Það er komið gó hjá Bó Svala minnist pabba síns Tekur við af dóttur kærastans Sjá meira