Grunaður morðingi í gæsluvarðhald Breki Logason skrifar 6. mars 2010 18:39
Rúmlega fertugur Íslendingur sem grunaður er um að hafa stungið annan íslending til bana í Kaupmannahöfn í gær, hringdi sjálfur á neyðarlínuna eftir verknaðinn. Hinn grunaði hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 31. mars. Nágranni mannsins segir hurðinni á íbúð mannsins hafa verið sparkað upp í gærkvöldi. Maðurinn er grunaður um að hafa stungið félaga sinn í hálsinn með hnífi eftir að upp úr sauð á heimili þess látna. Morðið var framið rétt fyrir miðnætti í gærkvöldi í hluta Kaupmannahafnar sem heitir Valby. Árásarmaðurinn hringdi sjálfur í neyðarlínuna eftir verknaðinn. Ekki var hægt að yfirheyra hann í nótt þar sem hann var í nokkuð annarlegu ástandi. Poul Hansen rannsóknarlögreglumaður fer með rannsókn málsins. Poul segir mennina tvo áður hafa komið við sögu lögreglu fyrir minniháttar afbrot. Nágranni mannsins sagðist í samtali við fréttastofu í dag hafa heyrt nokkur læti rétt fyrir miðnætti í gær. Þá hefði verið eins og einhver hefði sparkað upp hurðinni og einhver átök hafist. Nágranninn sagði íslendinginn hafa búið í húsinu í þau tvö ár sem hann hefði búið þar. Hverfið væri rólegt og friðsælt, en nokkuð ónæði hefði verið af íslendingnum sem bjó einn í íbúð sinni. Hann hefði þó verið með sambýliskonu fyrir nokkrum mánuðum og á ýmsu hefði gengið í sambúð þeirra.
Mest lesið Sigríður fannst heil á húfi Innlent Stunda njósnir og hafa athafnað sig á Íslandi Innlent „Myndi ekki mæla með þessu við nokkurn mann“ Innlent Úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna alvarlegrar stunguárásar Innlent Tilnefna Bandaríkjaforseta til friðarverðlauna Nóbels Erlent Bæta ekki fallvarnir við veginn: „Þetta er eilífur slagur“ Innlent Samningur í höfn: „Búið að skemma ansi mikið fyrir okkur“ Innlent Gular viðvaranir í kortunum Veður Fjörutíu grindhvalir fastir í Ólafsfirði Innlent Óvissu erlendra nemenda tímabundið eytt Erlent Fleiri fréttir „Glæpsamlegar árásir,“ gæludýr í fjölbýli og gleði með Messi Fjörutíu grindhvalir fastir í Ólafsfirði Braust inn í íbúð í Laugardalnum og allir voru heima Lakasta þátttakan meðal kynsegin fólks Stunda njósnir og hafa athafnað sig á Íslandi Sigríður fannst heil á húfi Úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna alvarlegrar stunguárásar Þyrlan send út vegna göngumanns í sjálfheldu Samningur í höfn: „Búið að skemma ansi mikið fyrir okkur“ Ógnarhópar með tengsl við Kína, Aþena og hinseginhátíð í Hrísey Sæki um íslenska vegabréfsáritun til að ferðast annað „Myndi ekki mæla með þessu við nokkurn mann“ Kattholt yfirfullt Steypumót féll á starfsmann byggingarfyrirtækis Bæta ekki fallvarnir við veginn: „Þetta er eilífur slagur“ Tékkneski og bandaríski herinn ásamt flugsystrum á Akureyri Þinglok hvergi í augsýn: „Málþóf! Málþóf!“ Segir komu írsku lögreglunnar marka tímamót í leitinni að Jóni Þresti Vinnuslys í Laugardal þar sem maður fékk járnstöng í andlitið Ísland tekur þátt í aðgerðum gegn skuggaflota Rússlands Óttast að boð og bönn ráðherra muni setja verslanir í þrot Leit að Sigríði heldur áfram um helgina Kenningar um hvarfið, uggandi rafrettusalar og málabunkinn Flugvél á leið til Íslands lent í Manchester Hörður Svavarsson er látinn Allir úr stærsta árgangi sögunnar fengu inni Lýsa eftir Hlyni Vandamenn megi ekki lengur hjálpa glæpamönnum Leikskólabarn með áverka en starfsmaður sýknaður Lagt hald á fíkniefni og búnað til framleiðslu Sjá meira