Innlent

Sigmundur Davíð ánægður með kjörsóknina

„Kjörsóknin er ekki dræm, ég er ánægður með hana," segir formaður Framsóknarflokksins, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, sem greiddi atkvæði í Ráðhúsi Reykjavíkur upp úr hádegi í dag.

Hann bendir á að það sé aldrei sambærilegt þátttaka í þjóðaratkvæðagreiðslum og í þingkosningum. Hann tekur þjóðaratkvæðagreiðsluna á Írlandi um Lissabon sáttmálann sem dæmi. Þá var kosningaþátttaka rétt rúmlega 50 prósent á meðan kjörsókn fyrir þingkosningar þar í landi er á milli 80 og 90 prósent.

Sama er um Sviss að segja, þar sem þjóðaratkvæðagreiðslur fara oft fram, þá er þátttakan yfirleitt, þegar best lætur, á milli 40 til 50 prósent.

„Þannig það væri stórglæsilegt ef kjörsókn færi yfir 50 prósent," segir Sigmundur.

Sjálfur greiddi hann gegn samningnum en afstaða hans hefur legið fyrir hingað til. Spurður hvernig hann upplifði atkvæðagreiðsluna svara hann: „Mér fannst þetta skemmtilegt enda fyrsta þjóðaratkvæðagreiðslan. Þetta er mikill viðburður og ánægjulegt að taka þátt í honum."

Sigmundur segir að mikið hafi verið um erlenda fréttamenn í Ráðhúsinu þar sem hann greiddi atkvæði. Með honum var konan hans Sigmundar, „við fórum tvö og tókum reyndar hundinn með. Hann fékk ekki að kjósa," segir Sigmundur að lokum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×