Sjónrænir tónleikar Skmendanikku 30. september 2010 07:45 hljóð og mynd Sex verk eftir fimm tónskáld verða flutt af Skmendanikku í kvöld
Tónlistarhópurinn Skmendanikka sérhæfir sig í að flytja verk fyrir sértilbúin og heimagerð hljóðfæri. Í kvöld heldur hópurinn tónleika á tónlistarhátíðinni Sláturtíð. „Verkin eru öll ný og verða frumflutt í kvöld. Þau eru öll samnin fyrir ný hljóðfæri og verða flutt af fjölhæfum hljóðfæraleikurum sem eiga það sameiginlegt að hafa lært á fleiri en eitt hljóðfæri,“ segir Áki Ásgeirsson tónskáld og forsvarsmaður samtakanna S.L.Á.T.U.R., Samtaka listrænt ágengra tónsmiða umhverfis Reykjavík. Áki segir tónleikana örugglega verða upplifun fyrir bæði eyru og augu, enda hljóðfærin myndræn og nótnaskriftinni varpað á veggi. S.L.Á.T.U.R. hefur haldið úti vinnustofu hljóðfæragerðar og hafa upp úr þeirri nýsmíð meðal annars komið hljóðfærin Halldórófónninn og Airwaves-rörið enda hefur hópurinn „djúpan skilning á því að til þess að búa til nýja menningu þarf ný verkfæri,“ eins og segir í tilkynningu. Hópinn skipa þeir Frank Aarnink, slagverksleikari, Sturlaugur Björnsson, fyrrum hornleikari og bruggmeistari, og Snorri Heimisson, fagottleikari og stjórnandi Lúðrasveitar verkalýðsins. Verkin eru Halanali eftir Guðmund Stein Gunnarsson, ónefnt eftir Inga Garðar Erlendsson, Flipp B og Find the B-flat eftir Jesper Pedersen, T-1 eftir Pál Ivan Pálsson og Duel eftir Þorkel Atlason. Tónleikarnir hefjast klukkan níu í Útgerðinni í Grandagarði.- sbt
Fréttir Mest lesið Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Lífið Anne Carson hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels Menning Alaska og Flóni hætt saman Lífið Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Lífið „Það er smá töffari í mér“ Tíska og hönnun Eiginmennirnir fá „ahhsonna aðeins“ útreið Menning Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ Lífið Douglas gengst við enn einu framhjáhaldinu Bíó og sjónvarp Verðlaunin ráðgáta og tilfinningin klikkuð Lífið Saga Sig og Villi naglbítur eignuðust dóttur Lífið Fleiri fréttir Alaska og Flóni hætt saman Saga Sig og Villi naglbítur eignuðust dóttur Verðlaunin ráðgáta og tilfinningin klikkuð Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Eva Marie Saint er látin Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Krakkatía vikunnar: Eurovision, Harry Potter og Mr. Beast Sjá meira