Skoðun

2011, ár endurreisnar!

Steingrímur J. Sigfússon skrifar
Hvar erum við sem þjóð á vegi stödd rúmum tveimur árum bak hruninu sem hér varð í október 2008? Óumdeilt er að við höfum glímt við mikla erfiðleika og hefur orðið heilmikið ágengt í að vinna okkur út úr þeim. Áfallið sem hér varð var af þvílíkri stærðargráðu að óraunsætt og barnalegt væri að ætla að allt væri komið í samt lag tveimur árum síðar enda er það auðvitað ekki svo.

Fjórir fimmtu hlutar fjármálakerfisins fóru á hliðina, ofvaxinn bygginga- og mannvirkjageiri hrundi saman, þúsundir misstu vinnuna á örfáum mánuðum, skuldir hlóðust á ríkið, tekjur féllu og útgjöld jukust. Samanburður við það sem var á árunum um og fyrir 2007 er líka óraunhæfur því þá lifðum við sannarlega um efni fram, í bólu skuldsetningar og sýndarverðmæta. En, raunhagkerfið íslenska sem ekki hrundi hefur sannað styrk sinn og aðlögunarhæfni. Við áramót 2010 er staðan þessi:

Ísland er löngu horfið af listum yfir þær þjóðir sem í mestri hættu eru taldar. Áhættuálagið á Ísland, sem fór yfir 1.000 punkta þegar verst lét eftir hrun, er nú komið niður í um 270 og fer lækkandi, er sem sagt orðið lægra en það var mánuðina fyrir hrunið 2008. Gengi krónunnar hefur styrkst umtalsvert á árinu og nú upp á síðkastið hefur Seðlabankinn hafið kaup gjaldeyris á markaði. Endurfjármögnun bankakerfis og sparisjóða er að mestu lokið og klárast það sem út af stendur væntanlega á allra næstu vikum.

Vextir hafa lækkað skarpt eða úr 18% niður í 4,5%, til mikilla hagsbóta fyrir skuldsett heimili og atvinnulíf sem og þá sem hyggja á fjárfestingar. Vextir hér á landi eru nú á svipuðum slóðum og þeir voru á evrusvæðinu 2008. Verðbólga lækkaði jafnt og þétt og er nú í desember komin inn fyrir viðmiðunarmörk Seðlabankans (2,5%) í fyrsta sinn í 7 ár.

Gripið hefur verið til umfangsmikilla aðgerða til að aðstoða heimili og fyrirtæki í skuldavanda. Munu yfir 60 þúsund heimili njóta góðs af aðgerðum ríkisstjórnar­innar. Munar þar ekki síst um hærri vaxtabætur og sérstaka vaxtaniðurgreiðslu sem munu nema í heild um 18 mia. kr. Árlegur heildarkostnaður heimila í landinu vegna vaxta og afborgana af húsnæðislánum er um 60 mia. kr. Til viðbótar þessu hafa fyrri úrræði verið verulega bætt, embætti umboðsmanns skuldara komið á fót og sú starfsemi verið stórefld. Samkomulag hefur tekist um að vinna hratt úr skuldavanda lítilla og meðalstórra fyrirtækja.

Fjárlögin 2011 marka mikil tímamót í ríkisfjármálum. Án aðgerða áranna 2009-2011 hefði ríkis­sjóður stefnt í þrot vegna þess tekjufalls sem hann varð fyrir eftir hrun sem og þeirrar útgjaldaaukningar sem varð í formi stóraukins vaxtakostnaðar, aukins atvinnuleysis og margvíslegs herkostnaðar af völdum hrunsins. Þrátt fyrir mikinn niðurskurð hefur velferðarkerfið verið varið. Samdrátturinn í velferðarútgjöldunum á tveimur og hálfu ári er sennilega á bilinu 6-8% á meðan yfirstjórn og almennur rekstur er kominn í nálægt 20%.

Samkvæmt fjárlögum næsta árs verður rétt tæplega 1% afgangur af frumjöfnuði í rekstri ríkisins (15,5 mia kr.). Gangi það eftir verður Ísland eitt af aðeins 8-10 OECD ríkjum sem ná jákvæðum frumjöfnuði á næsta ári. Fáir hefðu spáð að það tækist haustið 2008. Þessum árangri tókst að ná við loka­afgreiðslu fjárlaga þó verulega væri dregið úr niður­skurði, einkum til velferðarmála og sums staðar bætt við. Með fjárlögum ársins 2011 er stærstur hluti nauðsyn­legrar aðlögunar ríkisfjármálanna að baki. Í ársbyrjun er fjórða endurskoðun efnahagsáætlunar íslenskra stjórnvalda og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins á dagskrá og mun marka tímamót. Með henni opnast aðgangur að síðasta hluta gjaldeyrislánanna og sér fyrir endann á áætluninni.







Hagvöxtur og atvinnaHagvöxtur er talinn hafa verið 1,2% á þriðja ársfjórðungi þessa árs og allar hagspár gera nú ráð fyrir viðsnúningi hagkerfisins, þ.e. landið er að komast út úr kreppunni. Öll skilyrði eru til að fjárfestingar fari vaxandi á næsta ári.

Lækkun vaxta og úrvinnsla á skuldum heimila og ekki síður lítilla og meðalstórra fyrirtækja munu hafa örvandi áhrif. Búast má við að á nýju ári fari ýmis atvinnuverkefni í gang sem sum hver hafa beðið í óvissu frá hruni en önnur eru nýrri af nálinni. Um leið og stöðugleika hefur verið náð og staða landsins og orðspor fer batnandi bíða tækifærin í röðum. Flest bendir til þess að metár sé í vændum í ferðaþjónustu, tækni- og þekkingargreinar og hinn skapandi geiri sækja fram. Glíman við að ná niður atvinnuleysi og áframhaldandi aðgerðir til að gera fjármál hins opinbera sjálfbær verða í forgangi næstu mánuði og misseri.

Við erum á réttri leið, en glímunni er hvergi nærri lokið. Auðnist okkur að vinna áfram í sæmilegum friði að hinu gríðarlega mikilvæga verkefni, endurreisn landsins, þá eru okkur allir vegir færir Íslendingum. Góður vinnufriður og stöðugleiki, í efnahagsmálum, á vinnumarkaði og í stjórnmálum, er okkur áfram lífsnauðsynlegur. Það er í okkar höndum að gera árið 2011 að góðu ári, ári mikils umsnúnings til hins betra.

Ég þakka Fréttablaðinu og lesendum þess samfylgdina á árinu og óska landsmönnum öllum gleðilegs nýs árs.








Skoðun

Skoðun

Al­einn í heiminum?

Lukka Sigurðardóttir,Katrín Harðardóttir ,Margrét Kristín Blöndal skrifar

Sjá meira


×