Spenningurinn mikill 24. ágúst 2010 17:09 Thelma söngkona er í miðið. MYNDIR/Silfur
Hljómsveitin SILFUR gaf nýverið út sinn fyrsta geisladisk sem fékk nafnið Ekkert Vesen. Á meðfylgjandi myndum má sjá þegar bandið hélt útgáfutónleika í tilefni plötunnar á Sódómu Reykjavík. Auk Thelmu Hafþórsdóttur Byrd söngkonu, Andra Hrannars trommara, Stefán Þórs bassaleikara og Sveins Pálssona gítarleikara fékk bandið til liðs við sig góða og hæfileikaríka vini. „Okkur fannst mikilvægt að halda stemningunni á disknum og ákváðum því að fá Guðmann Sveinsson gítarleikara Trútón til að þétta flutninginn okkar á sviðinu enn frekar. Svo fengum við Írisi Hólm söngkonu Bermuda og Erlu Jónatansdóttur söngkonu Dægurflugnanna til að syngja bakraddir. Einnig fengum við Daða Georgsson í Default Studios sem tók upp plötuna okkar til að sjá um hljóðið og Sigurð Grétar Kristjánsson til að taka tónleika upp á myndband. Svo það má segja að þessir tónleikar hafi verið svona dýrari týpan og þannig vildum við hafa það," sagði Thelma. „Já, við vildum hafa þetta sérstakt enda eru þetta fyrstu útgáfutónleikarnir okkar allra og því skemmtilegt að taka þetta alla leið. Við vorum sótt á Cadilac limmósíu heim til mín þar sem hittumst fyrir tónleikana. Það var ótrúlega skemmtileg tilfinning að renna í hlað þar sem ljósmyndarar og tónleikagestir biðu okkar fyrir utan. Ef þetta er ekki lífið þá veit ég ekki hvað! Ég klæddist kjól frá Lindu Mjöll mágkonu minni frá E-label sem var flottur en þægilegur en svo voru það bara leður-leggins og háu stígvélin eins og svo oft áður. Maður verður að spila og líða gorgeous en þægilega," sagði hún. „Hljómsveitin spilaði lög plötunnar fyrsta lagi til hins síðasta 11 ásamt því að kynna lögin sérstaklega fyrir tónleikagestum sem voru ýmis að heyra lögin í fyrsta skipti eða heyrt þau á disknum. Gestir fengu smá innsýn inn í lögin því bandið deildi með hlustendum söguna á bak við lögin eins og hvernig lagið varð til og af hverju hvert lag hefði endað á plötunni. „Flest laganna höfum við aldrei spilað live og því var spenningurinn mikill í bandinu. Við vorum búin að æfa þau vel en auðvitað eru alltaf smá fiðrildi þegar maður spilar sitt eigið efni í fyrsta skipti opinberlega. En stemningin í salnum var rosalega góð og okkur leið vel upp á sviðinu og fannst gaman að deila þessu persónulega með fólkinu í salnum. Fólk var svo duglegt að lofa okkur eftir tónleikana að ég þori alveg að segja að við erum ótrúlega stolt af okkur. Svo enduðum við kvöldið á að taka tvö bestu balllögin okkar; Final Countdown og Sweet Child of Mine svo að það hljóta allir að hafa fengið eitthvað fyrir sinn snúð. Ég gæti allavega ekki verið sáttari með þetta og ég held að Bubbi megi vera ánægður með mig," sagði Thelma. Á disknum má finna níu frumsamin lög en þar að auki tvö tökulög sem bandið tók upp á sína arma og ættu að vera öllum Íslendingum kunn. Það eru lögin Valur og jarðarberjamaukið hans sem flestir þekkja sem Hvað er að ske með Grýlunum og svo Slappaðu af sem Flowers gerðu vinsælt á sínum tíma. Platan er í anda bandsins: Poppuð með rokkuðu ívafi. Platan er komin í valdar verslanir Hagkaupa, Pennans og Skífunnar en auk þess er hægt að festa kaup á plötunni á tonlist.is.
Mest lesið „Þetta var morðingi frænda míns, bara alvöru morðingi“ Lífið „Sjálfsvinna er ævistarf“ Lífið „Ég hélt að ég væri hreinlega að deyja“ Lífið „Ég ræð ferðinni“ Lífið „Þetta gekk eins og í lygasögu“ Lífið „Þessi Barbie-dúkka horfir ekki á neitt nema spegilinn“ Lífið Jökull og Telma hvort í sína áttina Lífið Sjálfskipaður Yoda okkar Íslendinga hefur rangt fyrir sér Lífið „Enginn skömm að því að leita sér hjálpar“ Lífið „Fegurð er miklu meira en bara útlit“ Lífið Fleiri fréttir „Sjálfsvinna er ævistarf“ „Þetta var morðingi frænda míns, bara alvöru morðingi“ „Þetta gekk eins og í lygasögu“ „Ég hélt að ég væri hreinlega að deyja“ „Ég ræð ferðinni“ Jökull og Telma hvort í sína áttina „Þessi Barbie-dúkka horfir ekki á neitt nema spegilinn“ „Fegurð er miklu meira en bara útlit“ Stórum hluta kærunnar vísað frá Íslandsvinurinn Gucci Mane frelsissviptur Birnir á lag ársins Myndaveisla: Hundar og kettir velkomnir síðan árið 2017 „Enginn skömm að því að leita sér hjálpar“ Logi Bergmann spyr fjölmiðlamenn spjörunum úr „Ef þú ert að fara í gegnum helvíti haltu bara áfram“ Páskar: Ef þú mættir velja einhvern til að krossfesta Hvað veistu um… Óskarsverðlaunin? Bubbi, kílómetragjaldið og svikin um boltaland fyrir fullorðna Notaði allar líflínurnar í byrjun þáttarins Hlustendaverðlaunin: Kaleo er flytjandi ársins Páskabingó Blökastsins Úr Brúðkaupsþættinum Já yfir í að þjálfa leiðtoga Bubbi með opna hljómsveitaræfingu í Höllinni „Þá spurði ég hann hvort hann vildi gamla eða nýja ísinn“ Mótefni gegn afmennskun og kúgun Var sagt að þetta væri „hluti af því að vera kona“ Hundrað skvísur blómstruðu saman Er ástin blind? Eru konur ástsjúkari en karlar? Kom gríðarlega stórum hlut í gegnum kleinuhring án þess að skemma hann Förgun bóka áþekk því að lóga gæludýrum Sjá meira