Erpur og Móri ætla að kæra hvor annan 16. febrúar 2010 06:00 barði móra með moppu Erpur ræddi við lögreglu fyrir utan útvarpssvið 365 í gær. Hann er viss um að Móri hafi ætlað að drepa sig.Fréttablaðið / vilhelm
Rapparinn Erpur Eyvindarson átti fótum sínum fjör að launa á útvarpsstöðinni X-inu í gær þegar annar rappari, Móri, réðst að honum vopnaður hníf og rafbyssu. Móri, sem heitir réttu nafni Magnús Ómarsson, gaf sig fram við lögreglu um klukkustund síðar. Erpur hyggst kæra og telur að Móri hafi ætlað að drepa sig. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins metur Móri atvikið þannig að Erpur hafi ráðist á sig, og ætlar að kæra hann fyrir líkamsárás. Rappararnir tveir hafa átt í illdeilum upp á síðkastið, og hafa stóryrði verið látin falla á víxl í fjölmiðlum. Snýst deilan meðal annars um það hvor er meiri frumkvöðull á rappsviðinu. Til stóð að Móri og Erpur græfu stríðsöxina í beinni útsendingu í þættinum Harmageddon á X-inu í gær. Móri mætti á staðinn vopnaður hníf og rafbyssu, og með stóran doberman-hund sér við hlið. Endurbætur standa yfir á útvarpssviði 365 og beið Móri átekta í mannlausu anddyrinu stutta stund. Þegar Erpur kom á staðinn sauð upp úr. „Hann ýtir í mig og fer að þenja sig. Ég gríp þá í hann og keyri á hann. Hann dettur og fer að kýla mig," segir Erpur. „Þegar ég held honum niðri dregur hann upp hníf og byrjar og sveifla honum á fullu. Ég hleyp í burtu og hann reynir að stinga mig. Ég tek þá moppu og lem hann í hausinn." Móri hrökklaðist þá burt. „Þessi hundur var latasti hundur sem ég hef séð. Ég þakka fyrir það," segir Erpur. Ekki náðist í Móra í gær. stigur@frettabladid.is atlifannar@frettabladid.is Móri ræðst á Erp á leiðinni í útvarpsviðtal hjá X-inu með hníf rafbyssu og doberman hund Móri ræðst á Erp á leiðinni í útvarpsviðtal hjá X-inu með hníf rafbyssu og doberman hund Móri ræðst á Erp á leiðinni í útvarpsviðtal hjá X-inu með hníf rafbyssu og doberman hund
Mest lesið Orð Kristrúnar vöktu „gott bros“ Bandaríkjaforseta Innlent Bassi Maraj sakfelldur fyrir líkamsárás Innlent „Þetta er svona hús sem er alltaf verið að flytja í og úr“ Innlent Senda þjóðinni „skýr skilaboð“ á óróatímum Innlent Var ekki með réttindi til að aka hjólinu sem átti ekki að vera í umferð Innlent Bíll valt í Kópavogi Innlent Vilja ábendingar um „kettlingamyllur“ og síendurtekin got Innlent Flagga íslenska þjóðfánanum í ólöglegri göngu Innlent Kristrún missti af fundi með Selenskí Erlent Tók í spaðann á Trump: „Hann er nú heillandi, karlinn“ Erlent Fleiri fréttir „Menn eru alla vega að vinna með sömu tölu“ Sögulegur NATO-fundur, umræðumet í uppsiglingu og afmæli í Heiðmörk „Þetta er svona hús sem er alltaf verið að flytja í og úr“ Bíll valt í Kópavogi Líkir veiðigjaldaáformum við sóvéska eignaupptöku Komu sextán dvalarleyfishöfum af Gasasvæðinu Heiðrún Lind fóðri málflutning með alvarlegum rangfærslum Sameiningarhugur á Vestfjörðum Rannsókn á andláti í Garðabæ lokið Orð Kristrúnar vöktu „gott bros“ Bandaríkjaforseta Gæsluvarðhald aftur framlengt um fjórar vikur Var ekki með réttindi til að aka hjólinu sem átti ekki að vera í umferð Bassi Maraj sakfelldur fyrir líkamsárás Lokanir á brúnni yfir Jökulsá í kvöld Rangstæð valkyrja sem skilji ekki frumvarpið Flagga íslenska þjóðfánanum í ólöglegri göngu Læknasamningur gæti orðið hvati að oflækningum Sjúkratryggingar fagna skýrslu Ríkisendurskoðunar Sjúkratryggingar réðu illa við læknana í Reykjavík Benedikt nýr skólameistari VMA Meirihluti vill stöðva málþóf á Alþingi Vilja ábendingar um „kettlingamyllur“ og síendurtekin got Verður nýr skólameistari á Húsavík Senda þjóðinni „skýr skilaboð“ á óróatímum Skildi ekki hvers vegna kennarinn var ekki rekinn Ræddu veiðigjöldin til að ganga hálf fjögur Slagsmál á hóteli í miðborginni Margir í vandræðum vegna of skyggðra rúðna Tillögur um skattalækkanir felldar: Segir ótrúlegt að hlusta á rök „Skattfylkingarinnar“ Segja manninn hafa glímt við alvarleg veikindi Sjá meira