Í hvaða stöðu spilar Eggert á morgun? Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 2. janúar 2009 12:57 Eggert Gunnþór Jónsson í leik með Hearts. Nordic Photos / Getty Images
Hearts mætir á morgun liði Hibernian í borgarslag Edinbourgh í skosku bikarkeppninni. Ljóst er að Eggert Gunnþór Jónsson verður í byrjunarliði Hearts en óljóst í hvaða stöðu. Hearts tapaði um síðustu helgi fyrir Aberdeen í úrvalsdeildinni þar sem tveir leikmenn fengu að líta rauða spjaldið. Fyrst Maruis Zaliukas fyrir tvær áminningar og svo Lee Wallace eftir leik fyrir mótmæli. Eggert var á varamannabekknum í leiknum sem er heldur óvanalegt en þar sem báðir eru varnarmenn verður að teljast líklegt að hann muni spila í vörninni á morgun, annað hvort í stöðu vinstri bakvarðar eða miðvarðar. En þó er ekki útilokað að Eggert spili á miðjunni þar sem hann er vanur. Eggert hefur þó hingað til á tímabilinu spilað í báðum bakvarðarstöðum, sem miðvörður og miðvallarleikmaður. „Leikmenn voru afar svekktir eftir leikinn en svona er boltinn bara," sagði Eggert í samtali við skoska fjölmiðla. „Ég tel að leikmenn eigi ekki við agavandamál að stríða. Það voru miklar tilfinningar í spilinu sem hefur sín áhrif." Sjálfur fékk Eggert að líta rauða spjaldið í september síðastliðnum og segir að það hafi ekki orsakast af því að hann eigi við agavandamál að stríða. „Ég fór í tæklingu. Stundum er maður of seinn í tæklingar. Maður þarf bara að vita hvar draga eigi línuna. Maður verður að finna jafnvægið og ef það tekst er maður í góðum málum."
Fótbolti Mest lesið Aðeins sautján konur með betri tíma en Elísa í ógnarsterku utanvegahlaupi Sport Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Enski boltinn Ver umdeilda veggmynd sína af Ronnie O'Sullivan Sport Linda Líf gengur til liðs við nýliðana í enska boltanum Sport Hákon skoraði glæsimark gegn PSG Fótbolti Valsmenn slógu í klárinn undir lokin Handbolti Systurnar báðar með tvö mörk á Ásvöllum og KR upp í annað sætið Íslenski boltinn Bjarni ræðir brottförina frá Val: „Erfitt að ná alvöru stöðugleika“ Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Enski og Bestu deildirnar í aðalhlutverki Sport Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Enski boltinn Fleiri fréttir Sjáðu óverjandi mark Hákons gegn PSG PSG samþykkir tilboð Liverpool í Barcola Bjarni ræðir brottförina frá Val: „Erfitt að ná alvöru stöðugleika“ Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Systurnar báðar með tvö mörk á Ásvöllum og KR upp í annað sætið Fylkir kláraði Gróttu undir lokin og Aron Snær með þrennu fyrir Þrótt Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Hákon skoraði glæsimark gegn PSG Bæjarar hófu titilvörnina með stórsigri Jón Dagur skoraði sitt fyrsta deildarmark fyrir Berlínarbúa Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Mun sýna leiki þýsku úrvalsdeildarinnar á YouTube-rás sinni Rafael Leão til Galatasaray Dregið í Sambandsdeild: Íslendingar mætast og spila við nýliðana frá Andorra Dregið í Evrópudeild: Orri mætir Palace, Bournemouth og Juventus Styðja við börn með krabbamein: Arnór í búningi Rice á fyrsta Treyjudeginum Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Forsetinn tjáir sig um niðurbrotinn Alvarez: „Þykir þetta mjög miður“ Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Elías og félagar flugu áfram Uppgjörið: Borac - Víkingur 3-1 | Evrópuþátttöku Víkinga lokið Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Kristall skoraði þegar Brann komst áfram Róbert Frosti og Daníel Tristan á skotskónum Rodri kom inn af bekknum í sigurleik Fyrstir til að fara alla leið án þess að vinna leik Sjá meira