Viðskipti innlent

Iceland Express í viðræðum um meirihlutaeign í F.Í

Forstjóri Ferðaskrifstofu Íslands, móðurfélags Úrvals Útsýnar, Sumarferða og Plúsferða, fullyrðir að tekist hafi að bjarga fyrirtækinu í dag með aðkomu nýrra fjárfesta. Brottför flugvélar til Kanaríeyja hefur frestast frá því í morgun vegna greiðsluerfiðleika.

Samkvæmt heimildum Vísis er það Iceland Express sem hefur átt í viðræðum við Ferðaskrifstofuna um kaup á meirihlutaeign í félaginu.

Flugvél á vegum ferðaskrifstofunnar sem átti að fara frá Keflavík til Tenerife klukkan 7 í morgun er enn við landganginn en brottfrör er nú áætluð korter í ellefu í kvöld. Fyrr í dag sagði Þorsteinn Guðjónsson að seinkunin væri af tæknilegum orsökum.

65 starfsmenn vinna hjá Ferðaskrifstofu Íslands en Þorsteinn og Helgi Jóhannsson hafa verið eigendur þess.

750 farþegar eru nú erlendis á vegum félagsins og alls eiga 3.200 manns bókað far með því á næstunni.








Tengdar fréttir

Ferðaskrifstofa Íslands á barmi gjaldþrots

Flugi sem átti að fara frá Íslandi til Tenerife klukkan 07:00 í morgun hefur verið frestað til klukkan 18:00. Farþegarnir eru á vegum Ferðaskrifstofu Íslands sem er á barmi gjaldþrots. Félagið hefur tilkynnt Samgönguráðuneytinu um erfiðleika sína en forstjórinn vill ekki meina að félagið sé gjaldþrota. Um hundrað störf eru í húfi. Heimildir Vísis herma að fjárfestir sé í viðræðum um kaup á félaginu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×