50/50 Kristinn E. Hrafnsson skrifar 26. júní 2009 11:36 Það er alltaf fagnaðarefni þegar gefin er út bók um íslenska myndist og þá ekki sýst ísl. nútímalist. Sérstaklega ber auðvitað að fagna slíku framtaki ef það er fyrirfam frábær útgáfa, eins og segir í fréttatilkynningu um útgáfu bókarinnar Icelandic Art Today. Bókin er fyrsta bók sinnar tegundar á ensku, þar sem finna má breiðan hóp íslenskra samtímalistamanna, sem eru fæddir eftir 1950. Í bókinni er fjallað um 50 ísl. listamenn og um þá skrifað af 13 höfundum á 340 blaðsíðum. Í fréttatilkynningu um útkomu bókarinnar er þessi ágæta klausa um ísl. myndlist síðustu áratuga: Þegar á heildina er litið er nýleg íslensk samtímalist fremur byggð á léttúð gagnvart hefðinni og furðulegum andstæðum vestrænna samfélagshátta í skauti hrikalegrar náttúru, sem hvergi á sinn líka í Evrópu, þótt einhlít skilgreining á íslenskri list síðustu áratuga verði seint fundin. Einangrun, við aðstæður sem hæglega raska venjulegri tíma- og rýmisskynjun er ef til vill samnefnari íslenskrar samtímalistar, þó svo að Icelandic Art Today gefi allt annað til kynna. Þetta er áhugavert og í raun væri hægt að skrifa heila 340 síðna myndskreytta bók um þennan stutta texta, svo hlaðinn er hann merkingu og merkingarleysi. Svo er bætt um betur og íslensk list sögð búa yfir eigin lögmálum, sem ekki er auðvelt að ráða í þótt einkennin liggi í augum uppi. Það var og - eigin lögmálum! Kannast einhver við tóninn? Bókin er semsagt að koma út seinna í dag og úr því ég hef ekki séð hana ennþá ætla ég ekki að eyða púðri í ólesinn texta, heldur hitt, hvernig að útgáfu hennar er staðið. Í fréttatilkynningu eru HATJE CANTZ bókaforlagið, CIA (Kynningarmiðstöð ísl. myndlistar) og Listasafn Íslands sögð vera útgefendur bókarinnar. Það sem vekur athygli mína eru framlög CIA og LÍ, en bæði batteríin eru rekin fyrir opinbert fé af skornum skammti. Vissulega er það hlutverk CIA að kynna íslenska myndlist og styrkja listamenn til ákveðinna verkefna, en hvenær það varð hlutverk CIA að velja úr (50) listamenn sem fæddir eru eftir ákveðna dagsetningu (50) og gera þá að fulltrúum þjóðar sinnar og þversniði ísl. myndlistar, veit ég ekki. Það er auðvelt að færa fyrir þvi rök að þeir sem fæddir eru langt fyrir þann tíma séu enn í fararbroddi ísl. samtímalistar og höfðu umbreytt listalífinu hér strax á vöggualdri viðfangsefnanna í bókinni - hafi þau þá verið fædd. En það er annað mál. Það sem átti að vera meginmál þessarar greinar, er hvernig opinberar stofnanir eins og CIA og LÍ fara að því að velja listamenn í 50/50 manna flokkinn. Þeir eiga að hafa verið áberandi síðustu áratugina eins og þar stendur. Það getur verið sjónarmið, en hvernig er það metið? Hvað felst í því að vera áberandi? Er notaður einhver frægðarstuðull eða margfeldi til að reikna menn til ágætis í listrænum efnum? Er það mælt í dálksentímetrum, mínútum í sjónvarpi eða sýningum á heimavelli og erlendis eða fjölda þeirra safna sem kynna viðkomandi listamann? Þetta fer ekki endilega alltaf saman, eins og vitað er. Er það ákvörðun safnráðs LÍ að standa svona að útgáfumálum og skráningu listasögunnar - fara eftir fæðingarárum og kategorískt fjalla bara um þá sem eru áberandi skv. einhverjum óræðum skilgreiningum? Hvað með listræn gæði - er sú viðmiðun ekki lengur ásættanleg? Hvert er framlag safnsins - er það mælt í peningum eða einhverju öðru? Ef það eru peningar, þá er mér brugðið vegna þess að það á enga peninga, hvorki til almennilegs rekstrar né lögboðinna innkaupa og skráningar á ísl. myndlist. Þar á ofan má benda á það að þeir sem skrifa textana í bókina eru ekkert sérlega áberandi í ísl. listalífi og raunar býr ekki nema helmingur þeirra á landinu. Hvaðan fékk allt það fólk upplýsingar um ísl. myndlist síðustu áratuga? Hver/hverjir völdu þennan lista og hvernig fóru þeir að því? Þetta eru lykilspurningar og þeim verður að svara ef bókin á að vera trúverðugur vitnisburður um það sem hún geymir. Enn má líka spyrja hversvegna svona bók er aðeins ætluð enskumælandi fólki? Hefur enginn það á tilfinningunni að það þurfi að kynna þessa list fyrir íslenskum almenningi? Nú er það auðvitað svo að ég veit ekki hvort ég er í þessu riti eða ekki - enda er bókin ekki komin út. En ég hef kosið að spyrja þessara spurninga núna og tel mig eiga rétt á að fá þeim svarað frá þeim sem þetta vita. Bókin kemur út í dag og útgáfuteitið verður í Listasafni Íslands kl. 16-18. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Halldór 12.04.2026 Halldór Innganga Íslands í ESB: Hvað verður um lífeyrissjóðinn þinn? Júlíus Valsson Skoðun Tíu ára atvinnustefna, tíu árum of seint: Regnhlíf gegn flóðbylgju Björgmundur Örn Guðmundsson Skoðun Að kasta ábyrgðinni á aðra Sonja Lind E. Eyglóardóttir Skoðun Hólar í Hjaltadal „hér og þar og þá og nú“ Gunnar Rögnvaldsson Skoðun Afvegaleiðing umræðu um ESB Sigurður Kristinn Pálsson Skoðun Er einmanaleiki nýja tóbakið? Sigurður Árni Reynisson Skoðun Landskjörstjórn gerir athugasemd við spurninguna Erna Bjarnadóttir Skoðun Hafa af þér fullveldið, Eiríkur?? Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Norsk Óskarsverðlaun og íslensk kreppa Sveinbjörn I. Baldvinsson Skoðun Skoðun Skoðun Ljósið elt út í haug Sigurjón Njarðarson skrifar Skoðun Hnífur í hjarta íslenskrar kvikmyndagerðar Helgi Felixson skrifar Skoðun Innganga Íslands í ESB: Hvað verður um lífeyrissjóðinn þinn? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Ábyrgð gallaðs kerfis og þegjandi samfélags! Dagbjört Ósk Steindórsdóttir skrifar Skoðun Að kasta ábyrgðinni á aðra Sonja Lind E. Eyglóardóttir skrifar Skoðun Tíu ára atvinnustefna, tíu árum of seint: Regnhlíf gegn flóðbylgju Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar Skoðun Hólar í Hjaltadal „hér og þar og þá og nú“ Gunnar Rögnvaldsson skrifar Skoðun Landskjörstjórn gerir athugasemd við spurninguna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Börnin í Hveragerði Þorsteinn Hjartarson,Birgitta Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Afvegaleiðing umræðu um ESB Sigurður Kristinn Pálsson skrifar Skoðun Er einmanaleiki nýja tóbakið? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun „Dæmisögur Jesú“—Líf sem ber hundraðfaldan ávöxt. Sigurvin Lárus Jónsson skrifar Skoðun Norsk Óskarsverðlaun og íslensk kreppa Sveinbjörn I. Baldvinsson skrifar Skoðun Þróun orðræðu um dauðann í íslenskri menningu Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hafa af þér fullveldið, Eiríkur?? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Röddin - Íslensku hljóðvarps- og hlaðvarpsverðlaunin Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ekki trúa öllu sem þú lest á samfélagsmiðlum. Komdu í kaffi ég skal sýna þér Grindavík Dagmar Valsdóttir skrifar Skoðun Myndskýrsla - Hvað er þessi brottfararstöð? Alex Sumarliði skrifar Skoðun Hér er matur, um mat, frá mat, til fæðubótarefna... Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Tryggjum fæðu- og eldsneytisöryggi með uppbyggingu á Dysnesi Pétur Ólafsson skrifar Skoðun Sterk vinnustaðarmenning er lykillinn að góðum árangri Kolbrún Magnúsdóttir skrifar Skoðun Ef þetta er samsæri, þá er ég greinilega að gera þetta vitlaust Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Nýtt Álftanes á einu kjörtímabili Hreiðar Þór Jónsson skrifar Skoðun Evrópa fyrir íslendinga Ásgeir Þorgeirsson skrifar Skoðun Það sem Íslendingar þurfa að skilja Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Hættum beit í bænum Davíð Arnar Stefánsson skrifar Skoðun Gagnsæi í ákvarðanatöku Heiðrún Kristmundsdóttir skrifar Skoðun Nýsköpun í breyttri heimsmynd Erna Björnsdóttir skrifar Skoðun Rödd ungs fólks á Seltjarnarnesi þarf að heyrast Auður Halla Rögnvaldsdóttir skrifar Skoðun Þau sem borga ekki Silja Sóley Birgisdóttir skrifar Sjá meira
Tíu ára atvinnustefna, tíu árum of seint: Regnhlíf gegn flóðbylgju Björgmundur Örn Guðmundsson Skoðun
Skoðun Tíu ára atvinnustefna, tíu árum of seint: Regnhlíf gegn flóðbylgju Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar
Skoðun Ekki trúa öllu sem þú lest á samfélagsmiðlum. Komdu í kaffi ég skal sýna þér Grindavík Dagmar Valsdóttir skrifar
Skoðun Ef þetta er samsæri, þá er ég greinilega að gera þetta vitlaust Haukur Logi Jóhannsson skrifar
Tíu ára atvinnustefna, tíu árum of seint: Regnhlíf gegn flóðbylgju Björgmundur Örn Guðmundsson Skoðun