Eigandaskipti Iceland Express hugsanlega ólögleg Heimir Már Pétursson skrifar 2. júní 2009 18:45
Skiptastjóri þrotabús Fons skoðar nú hvort eigendaskipti á Iceland Express undir lok síðasta árs hafi verið ólögleg. Níutíu prósent hlutur í flugfélaginu fluttist á milli tveggja félaga sem bæði voru í eigu Pálma Haraldssonar. Fengur eignaðst hlutinn í Iceland Express í gegnum hlutafjáraukningu undir lok síðasta árs. Hlutur Fons, sem var áður hundrað prósent, varð tæplega átta prósent. Fons er nú gjaldþrota. Óskar Sigurðsson, skiptastjóri þrotabús Fons, sagði í samtali við Fréttastofu að verið væri að kalla eftir gögnum um þetta mál til að sjá hvort hlutafjáraukningin hafi endurspeglað raunverulegt virði Iceland Express á þessum tíma. Með hlutafjáraukningunni bjargaði Pálmi Haraldsson Iceland Express út úr Fons og hélt stjórninni á félaginu. Óskar sagði jafnframt að Landsbankinn, sem ætti veð í hlut Fons í Iceland Express, hefði skoðað hlutafjáraukninguna á sínum tíma og ekki séð neitt athugavert þegar málið var skoðað ofan í kjölinn. Meðal eigna Fons er 23 prósent hlutur í 365 miðlum sem reka meðal annars Stöð 2 og Vísi. Fréttatilkynning frá Iceland Express: Vegna frétta um eigendaskipti Iceland Express í kvöld vill félagið taka fram, að í haust eftir bankahrunið var ljóst, að nýtt fjármagn vantaði inní rekstur félagsins. Ekki var í mörg hús að venda því rekstrarfé lá ekki á lausu. Var því gripið til þess ráðs að auka hlutafé með framlagi frá eignarhaldsfélaginu Feng. Landsbankinn hafði hagsmuna að gæta og skoðaði viðskiptin ofan í kjölinn. Bankinn sá ekkert athugavert við viðskiptin, eins og raunar kom fram í fréttinni á Stöð 2 í kvöld. Iceland Express harmar að reynt sé að ala á tortryggni í viðskiptalífinu með fréttaflutningi af þessu tagi.
Mest lesið Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Sjá meira