Viðskipti innlent

Hefja flug til Edin­borgar og Malaga

Atli Ísleifsson skrifar
Icelandair hefur flug til fjögurra nýrra áfangastaða í haust.
Icelandair hefur flug til fjögurra nýrra áfangastaða í haust. Vísir/Vilhelm

Icelandair hefur flug til fjögurra nýrra áfangastaða í haust. Edinborg og Malaga bætast við sem nýir áfangastaðir í september en áður hafði félagið tilkynnt um flug til Istanbul og Miami.

Þetta kemur fram í tilkynnigu frá Icelandair. Þar segir að vegna mikillar eftirspurnar hafi flugáætlun til Nashville verið framlengd inn í janúar og flugtímabilið til Hamborgar verið framlengt út október. Þá verði tíðni aukin til Alicante, Barcelona og Brussel.

„Malaga er hafnarborg í Andalúsíu héraði á Suður-Spáni og er þekkt fyrir menningu, sögu og sólríkar strendur. Flogið verður til Malaga einu sinni til tvisvar í viku frá 6. september til 30. maí og er flugtími fjórar klukkustundir og 45 mínútur.

Edinborg hefur lengi verið vinsæll áfangastaður Íslendinga en auk þess munu opnast mjög góðar tengingar þangað til og frá Norður-Ameríku. Borgin er ein vinsælasta ferðamannaborg Norður-Evrópu og oft nefnd á meðal þeirra fegurstu. Flogið verður til Edinborgar þrisvar til fjórum sinnum í viku frá 12. september til 12. apríl og er flugtími tvær og hálf klukkustund,“ segir í tilkynningunni. 

Haft er eftir Boga Nils Bogasyni, forstjóra Icelandair, að það sé félaginu sönn ánægja að auka úrval vetraráfangastaða með því að hefja flug til Malaga og Edinborgar. 

„Þá er það sérstaklega við hæfi að bæta skosku höfuðborginni við í ár þegar 80 ár eru frá fyrsta flugi Icelandair til Skotlands, sem jafnframt var fyrsta millilandaflug íslensks flugfélags. Í fyrsta sinn í sögunni tilkynnum við fjóra nýja áfangastaði yfir vetrartímann og er það í takt við stefnu okkar um að vaxa utan háannatíma sumarsins en með innkomu nýrri og hagkvæmari flugvéla í flotann opnast tækifæri fyrir stærri vetraráætlun. Þannig getum við nýtt innviði okkar betur yfir vetrartímann og á sama tíma stuðlað að minni árstíðarsveiflu í íslenskri ferðaþjónustu,“ segir Bigi Nils.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×