Sjálfstæðismenn mótmæla harðlega verklagi vegna Icesave 22. desember 2009 20:23 Alþingi. Mynd úr safni.
Sjálfstæðismenn í fjárlaganefnd mótmæla harðlega því verklagi sem viðhaft er við yfirferð Icesavefrumvarpsins samkvæmt bókun sem þeir gerðu í fjárlaganefnd. Í bókunni segir meðal annars að mjög mikilvæg gögn hafi verið að berast nefndinni fram á síðustu stundu - mitt í jólaönnum þingsins - og engin efnisleg meðferð hafi farið fram um þau. Þá segir ennfremur: „Gert var samkomulag milli forseta og formanna stjórnarandstöðuflokkanna um meðferð málsins milli umræðna. Í því samkomulagi fólst að aflað yrði ákveðinna gagna. Nú hefur meirihluti fjárlaganefndar ákveðið að taka málið út úr nefndinni án þess að viðeigandi gögn, m.a. frá IFS, hafi borist. Að mati fulltrúa sjálfstæðisflokksins er hér um að ræða svik við það samkomulag sem gert var. Hér á Alþingi hafa farið fram stöðugar umræður og atkvæðagreiðslur um grundvallarbreytingar á skattkerfi landsmanna auk fjárlagafrumvarps næsta árs, fyrir utan önnur viðfangsefni. Ofan í þetta er fulltrúum í fjárlaganefnd ætlað að taka afstöðu til þessa gríðarlega mikla hagsmunamáls sem Icesave málið er. Það er útilokað fyrir alþingismenn í þessum önnum að kynna sér til hlítar þessi gögn sem lögð hafa verið fram og því síður tækifæri til umræðu um efnislega meðferð og afgreiðslu. Engin efnisleg rök hafa verið færð fram um það að nauðsynlegt sé að ljúka málinu nú. Að mati sjálfstæðismanna í fjárlaganefnd er ábyrgðarlaust að halda svona á hagsmunum Íslendinga í nútíð og framtíð og vísa ábyrgð á þessari málsmeðferð á hendur ríkisstjórn og meirihluta fjárlaganefndar."
Mest lesið Önnur sprunga opnast Innlent Að ráðast, eða ráðast ekki, á Moskvu Erlent Leggur til að frídögum verði fækkað um tvo Erlent Dómstóll ESB staðfestir niðurstöðu varðandi vörumerkið Iceland Innlent Fundu tennur í aftursætinu á bílaþvottastöð Innlent Fallegt og ekkert smágos Innlent Hyggst ekki segja af sér þrátt fyrir reiði vegna Epstein-listans Erlent Handtekin fyrir að stunda kynlíf með munkum og kúga af þeim fé Erlent Fyrst vöruskemman, nú göngustígar: „Mórallinn er bara ömurlegur“ Innlent Eldgosið í heimsmiðlunum: „Ísland: Rýmt“ Innlent Fleiri fréttir Gengu að gosinu og óku til Grindavíkur án þess að vera stöðvaðar Fundu tennur í aftursætinu á bílaþvottastöð Landa í Grindavíkurhöfn og botna ekkert í lokunum Mikið eldingaveður á Vestfjörðum Eldgosið í heimsmiðlunum: „Ísland: Rýmt“ Enn eitt gosið hafið og íbúar tala um Groundhog Day Kæmi mér ekki á óvart að þetta væri síðasta Sundhnúkagosið Fyrst vöruskemman, nú göngustígar: „Mórallinn er bara ömurlegur“ Skoða hvort gosið breyti heimsókn von der Leyen Dómstóll ESB staðfestir niðurstöðu varðandi vörumerkið Iceland Fallegt og ekkert smágos Önnur sprunga opnast Samhjálp „hálfnuð í mark“ og endurskipuleggur Kaffistofuna Göngumaður slapp ómeiddur úr sjálfheldu við Hestskarð Ólöf Tara yrði hissa en þakklát að gangan sé tileinkuð henni „Ekki bara fávísir hitabeltisbúar sem eru að detta á hausinn“ Yfirleitt Íslendingar sem aki utan vega Skipstjóri handtekinn talinn vera undir áhrifum „Ég var örugglega getinn í Land Rover“ „Valda fleiri húðkrabbameinum en sígarettur lungnakrabbameini“ Göngumaður í sjálfheldu við Hestskarð Ákall um ljósabekkjabann og gengið fyrir Ólöfu Töru Enn rís land í Svartsengi Engu mátti muna á að alvarlegur árekstur yrði á þjóðveginum Hleypti líklega óvart úr Kominn úr lífshættu eftir stunguárás við Mjóddina Gísli Jóns í tveimur útköllum frá miðnætti „Það gæti tekið bara fimmtán mínútur að kála þeim“ Maðurinn er fundinn Ekki sekur um að hafa valdið dauða manns í Kiðjabergi Sjá meira