Öll atriði samkomulagsins uppfyllt 22. desember 2009 13:32 Fjárlaganefnd að störfum. MYND/Vilhelm
Meirihluti fjárlaganefndar segir að öll atriði samkomulags sem gert var um Icesave málið til þess að unnt yrði að ljúka annari umræðu þess hafi verið uppfyllt og því eðlilegt að málið fari til þriðju umræðu eins og nú hefur verið ákveðið, í andstöðu við minnihluta nefndarinnar. Í tilkynningu sem meirihlutinn hefur sent frá sér er farið yfir öll 16 atriði samkomulagsins sem gert var í byrjun desember og bent á að þau séu öll uppfyllt. „Auk fjárlaganefndar fjölluðu Efnahags- og skattanefnd, Utanríkismálanefnd og Viðskiptanefnd um ákveðna þætti samkomulagsins og hafa nefndirnar allar skilað fjárlaganefnd áliti sínu á þeim þáttum," segir í tilkynningunni. Þá er bent á að fyrir liggi álit bresku lögfræðistofanna Ashurst og Myschon de Reya á texta samninganna sem og öðrum þeim atriðum sem óskað var eftir að þær gæfu álit sitt á. Álit lögfræðinga komin fram „Þrír íslenskir lögfræðingar hafa skilað inn álitum sínum á því hvort frumvarp um ríkisábyrgð vegna Icesave- samningana standist ákvæði stjórnarskrár Íslands. Leitað hefur verið til Seðlabanka Íslands varðandi áhrif skilyrðislausrar greiðsluskyldu á vöxtum og fjárhagslegrar þýðingar á efnahagslegum fyrirvörum Alþingis. Seðlabankinn hefur sömuleiðis lagt mat á hversu miklar fjárhagsskuldbindingar samningarnir fela í sér. Seðlabanki Íslands og IFS hafa gefið álit sitt á áhrifum skilyrðislausra greiðsluskyldu vaxta og unnið áhættumat á þeim skuldbindingum sem í samningunum felast," segir meirihlutinn. Þá er bent á að fyrir liggi gögn frá Seðlabankanum og fjármálaráðuneytinu á samanburð á föstum og breytilegum vöxtum og ráðuneytið hefur einnig, eins og önnur ráðuneyti, lagt fram þau gögn sem óskað hefur verið eftir og til eru af fundum íslenskra ráðherra og erindreka þeirra í tengslum við þetta mál. Geir og Ingibjörg hafa veitt upplýsingar „Geir H. Haarde fyrrverandi forsætisráðherra og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir fyrrverandi utanríkisráðherra hafa hvort um sig veitt þær upplýsingar sem óskað var eftir frá þeim í samkomulagi stjórnarandstöðunnar og forseta Alþingis." Að lokum segir að öll önnur atriði samkomulagsins hafi verið uppfyllt eins og kostur er og gert var ráð fyrir í upphafi málsins og því er það álit meirihluta fjárlaganefndar að staðið hafi verið í einu og öllu við það samkomulag sem gert var á milli formanna stjórnarandstöðunnar og forseta Alþingis um meðferð þessa máls og þeirra upplýsinga aflað sem óskað var eftir í samkomulaginu.
Tengdar fréttir Icesave frumvarpið afgreitt úr fjárlaganefnd Frumvarp um ríkisábyrgð á Icesave samningana var afgreitt úr fjárlagaefnd í hádeginu í dag. Málið var tekið úr nefndinni í ágreiningi að sögn Höskulds Þórhallssonar þingmanns Framsóknarflokksins. Meirihlutinn setti fram álit sitt í málinu og ákvað að vísa því til þriðju umræðu og segir Höskuldur að sú umræða fari fyrir þingið á milli jóla og nýárs. 22. desember 2009 12:56 Mest lesið Fimm handteknir eftir að skoti var hleypt af Innlent Þungt haldinn eftir árekstur á Hafnarfjarðarvegi Innlent „Kom hvergi nærri samræði hans við barnunga stúlkuna“ Innlent Maður leiddur út í járnum í lögregluaðgerð í Tryggvagötu Innlent Alvarlega særður eftir hnífstunguárás Innlent Airbnb-íbúðir leigðar undir fölsku flaggi Innlent Leggja til að veiðigjaldið verði innleitt í skrefum Innlent Mennirnir enn í haldi lögreglu Innlent Slökkt á eldsneytisflæði rétt eftir flugtak og ruglingur milli flugmanna Erlent Hvaðan kemur „kjarnorkuákvæðið“? Innlent Fleiri fréttir Vonar að minnihlutinn sýni ábyrgð svo ekki þurfi að beita ákvæðinu aftur Telja jákvæðu skrefin of fá Fyrsta sjálfvirka bílaþvottastöðin opnuð á Selfossi Alvarlega særður eftir hnífstunguárás Mennirnir enn í haldi lögreglu Staðan á Alþingi og refsilaus vændiskaup Leggja til að veiðigjaldið verði innleitt í skrefum Hvaðan kemur „kjarnorkuákvæðið“? Þungt haldinn eftir árekstur á Hafnarfjarðarvegi Einn handtekinn eftir stunguárás Fimm handteknir eftir að skoti var hleypt af „Kom hvergi nærri samræði hans við barnunga stúlkuna“ Maður leiddur út í járnum í lögregluaðgerð í Tryggvagötu Airbnb-íbúðir leigðar undir fölsku flaggi Opinberar gamalt ástarsamband við táningsstúlku „Liggur alveg ljóst fyrir að þetta frumvarp er drasl“ Forstöðumaður spilar og syngur fyrir gesti Sundlaugar Akureyrar Sögulegur dagur á Alþingi og vændi í Airbnb-íbúðum Árekstur bíls og vespu á Hafnarfjarðarvegi Sögulegur dagur á Alþingi: Lýðræðisákvæði eða kjarnorkusprengja? Varðskipið Þór heldur heim frá Noregi í næstu viku Frumvarpið komið yfir erfiðasta hjallann en gæti átt nóg eftir Einn handtekinn í mansalsrannsókn lögreglunnar Vændiskaupendur séu oftast fjölskyldufeður á leið til vinnu eða fundar Lögregla rannsakar slys í sundlauginni í Stykkishólmi Kristrún fái ef til vill að bragða á eigin meðali fyrr en síðar Hóta að loka svæðinu við Seljalandsfoss „Hann er að eigna sér eitthvað sem hann á ekki“ „Hræðilegar fréttir fyrir lýðræðið á Íslandi“ Fordæmalaus ákvörðun sem gæti breytt Alþingi til framtíðar Sjá meira
Icesave frumvarpið afgreitt úr fjárlaganefnd Frumvarp um ríkisábyrgð á Icesave samningana var afgreitt úr fjárlagaefnd í hádeginu í dag. Málið var tekið úr nefndinni í ágreiningi að sögn Höskulds Þórhallssonar þingmanns Framsóknarflokksins. Meirihlutinn setti fram álit sitt í málinu og ákvað að vísa því til þriðju umræðu og segir Höskuldur að sú umræða fari fyrir þingið á milli jóla og nýárs. 22. desember 2009 12:56