Ótrúlegur endasprettur Stoke tryggði stig gegn Villa 1. mars 2009 17:03 John Carew hefur eflaust haldið að hann væri búinn að tryggja Villa sigurinn þegar hann kom liðinu í 2-0 þegar ellefu mínutur voru til leiksloka AFP
Leikmenn Aston Villa fóru illa að ráði sínu í dag þegar þeir misstu niður tveggja marka forystu gegn Stoke City á heimavelli og urðu að sætta sig við 2-2 jafntefli. Villa er í harðri baráttu um sæti í Meistaradeild Evrópu og náði forystu skömmu fyrir hlé með marki frá Stilyan Petrov. Norðmaðurinn John Carew virtist svo hafa innsiglað sigurinn þegar hann kom Villa í 2-0 með laglegu marki eftir sendingu frá Petrov á 79. mínútu. Baráttuglaðir Stoke-menn voru þó ekki hættir og náðu að stela stigi með frábærum endaspretti. Ryan Shawcross minnkaði muninn með skalla eftir sendingu frá James Beattie þegar þrjár mínútur voru eftir. Það var svo Glenn Whelan sem var hetja Stoke þegar hann skoraði með þrumuskoti í uppbótartíma og tryggði sínum mönnum mikilvægt stig í botnbaráttunni. Villa hefði getað styrkt stöðu sína verulega í fjórða sæti deildarinnar með sigri í dag, en liðið hefur 52 stig, þremur minna en Liverpool sem er í þriðja sætinu og sex stigum meira en Arsenal sem er í fimmta sætinu. Stoke hefur 26 stig í næstneðsta sæti deildarinnar, jafnmörg stig og Middlesbrough og Blackburn sem eru í 18. og 17. sætinu. Staðan í ensku úrvalsdeildinni.
Enski boltinn Mest lesið „Svona hefur þetta verið allt mitt líf“ Enski boltinn „Einn af mínum bestu leikjum á tímabilinu“ Körfubolti Stjarnan - Tindastóll 97-103 | Stólarnir knúðu fram oddaleik Körfubolti „Hefði viljað fá tvær vítaspyrnur“ Íslenski boltinn „Sem betur fer slapp þetta“ Íslenski boltinn Vinicius kom í veg fyrir að Barcelona yrði sófameistari Fótbolti Sinner tók fram úr goðsögnum með glæstum sigri Sport Sjáðu sigurmark Mainoo og Tottenham stökkva upp úr fallsæti Enski boltinn „Vitum að þessir gæjar búa yfir gríðarlegum gæðum“ Íslenski boltinn Kennir vallaraðstæðum um: „Sérstaklega þurr og stamur“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Mjög brugðið við fréttirnar af Ferguson Sjáðu sigurmark Mainoo og Tottenham stökkva upp úr fallsæti „Svona hefur þetta verið allt mitt líf“ Tottenham kom sér upp úr fallsæti Ferguson fluttur á spítala Rúlluðu Palace upp og komnir í Evrópusæti Mainoo tryggði sigur eftir að United gaf tvö mörk Isak aftur meiddur Sjáðu öll mörkin úr enska boltanum: Gyökeres og Saka í banastuði fyrir Skytturnar Hélt á lofti og lofaði Newcastle að Sádarnir myndu ekki selja Benóný lauk deildinni á marki og fer í umspilið Skytturnar með sex stiga forystu á toppnum Tap West Ham gefur Tottenham von Hollywood-liðið missir af umspili og Ipswich í ensku úrvalsdeildina Guardiola léttur: „Slakir þjálfarar og skítaleikmenn“ Laglegt hjá Leeds sem forðast fall Færði tíðindi af Salah á blaðamannafundi í morgun Mainoo áfram í Manchester næstu árin Parker hættur hjá Burnley | Tekur Gerrard við? Salah ekki sagt sitt síðasta hjá Liverpool Mudryk áfrýjaði fjögurra ára banni Sú sigursælasta setur skóna á hilluna Guardiola sá langþráða endurkomu Benonýs Breka Gremja í City-mönnum sem spila þrjá leiki á sjö dögum Ipswich sigri frá sæti í ensku úrvalsdeildinni Stones rifar seglin hjá City Knattspyrnukona missti fóstur á æfingu: „Þeir björguðu líklega lífi mínu“ Fernandes nálgast stoðsendingametið eftir sigur United Fá leyfi til að leika sér í fríinu Fékk sér tebolla með Ratcliffe Sjá meira