Undankeppni HM í kvöld: Samantekt 1. apríl 2009 22:47 Michael Ballack skoraði fyrir Þjóðverja í kvöld Nordic Photos / Getty Images
Fjöldi leikja var á dagskrá í undankeppni HM í kvöld. Hér fyrir neðan verður greint frá því helsta sem gerðist í kvöld. Evrópumeistarar Spánverjar þurftu ríflega 90 mínútur til að tryggja sér 2-1 sigur á Tyrkjum á útivelli, en liðið hefur nú ekki tapað í 31 leik, eða síðan í nóvember 2006. Albert Riera skoraði sigurmarkið þegar komið var fram í uppbótartíma en Tyrkir höfðu komist yfir í leiknum. Spánverjarnir hafa unnið alla sex leiki sína í keppninni og eru í góðri stöðu. Englendingar voru sömuleiðis nokkuð frá sínu besta þegar þeir lögðu Úkraínumenn. John Terry tryggði þeim 2-1 sigur á Úkraínu með marki undir lokin, en Peter Crouch skoraði fyrsta markiði. Andriy Shevchenko jafnaði metin fyrir Úkraínu 16 mínútum fyrir leikslok. Hollendingar eru líka með fullt hús í sínum riðli og unnu góðan 4-0 sigur á Makedóníumönnum í riðli okkar Íslendinga. Dirk Kuyt skoraði tvívegis fyrir Hollendinga. Önnur helstu stórveldi Evrópuboltans héldu haus í leikjum sínum í kvöld. Heimsmeistararnir Ítalir gerðu reyndar 1-1 jafntefli við Íra í Bari þrátt fyrir að vera manni færri lengst af. Giampaolo Pazzini fékk rautt spjald snemma leiks og Robbie Keane jafnaði metin fyrir Íra undir lokin. Ítalska liðið er samt í fínum málum á toppi riðilsins. Þjóðverjar unnu góðan 2-0 sigur á Wales í Cardiff þar sem Michael Ballack skoraði annað mark Þjóðverja og hitt var sjálfsmark. Frakkar unnu 1-0 sigur á Litháum í París með marki frá Franck Ribery. Þá réttu Pólverjar úr kútnum eftir tap fyrir Norður-Írum um helgina með því að kjöldraga San Marino 10-0 þar sem Ebi Smolarek skoraði fernu.
Mest lesið HM í fótbolta: Sameiningaraflið sem sundrar Fótbolti Argentína - Ísland 3-0 | Messi messa vestanhafs Fótbolti Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Handbolti Birkir Már með tvö og Afturelding í undanúrslit í fyrsta skipti Fótbolti „Við erum félagar, við Messi“ Fótbolti Endurfundir Messi og Guðjohnsen Fótbolti Stoltir foreldrar: Gunnlaugur „manifestaði“ birtu eftir erfitt vor Golf Segja dómarann vera með tengsl við „hryðjuverkasamtök“ Fótbolti Risa afrek Gunnlaugs og samanburður við þá bestu áhugaverður Golf Sorgarsaga Sancho á enda en Rashford snýr aftur Enski boltinn Fleiri fréttir Ronaldo fór illa með færin í kvöld Birkir Már skorar þegar það er Megavika Birkir Már með tvö og Afturelding í undanúrslit í fyrsta skipti Geta unnið HM þrátt fyrir að eiga engan leikmann á topp 100 Infantino vill ekki biðjast afsökunar á miðaverðinu á HM „Við erum félagar, við Messi“ Segja dómarann vera með tengsl við „hryðjuverkasamtök“ McKenna hættir óvænt sem stjóri Ipswich Everton gert að greiða Burnley næstum því sex milljarða króna Messi sló ellimet gegn Íslandi Átta rauð spjöld í sama leiknum Ætla að kæra stuðningsmenn til lögreglunnar Leið Íslands á HM skýrist og leikur í Osló hjálpaði Sorgarsaga Sancho á enda en Rashford snýr aftur Keane og Fernandes grafa stríðsöxina Sjáðu magnaða innkomu Messi og öll mörk heimsmeistaranna Mótmæli fyrir utan opnunarleik heimsmeistaramótsins Endurfundir Messi og Guðjohnsen HM-minningin: Þegar Úrúgvæ setti fjórar stjörnur á búninginn sinn HM í fótbolta: Sameiningaraflið sem sundrar Rafael Leão ver hnefahöggið sitt Argentína - Ísland 3-0 | Messi messa vestanhafs „Þær eru ekkert eðlilega góðar“ Völlurinn og stúkan á floti stuttu fyrir leik Íslands og Argentínu Glódís Perla: Líður eins og þær séu 14 á móti 11 „Þær eru drullugóðar í fótbolta“ Krakkarnir fá frí í skólum vegna HM og foreldrarnir vinna heima Myndasyrpa: Sýndu af hverju þær eru bestar í heimi Mæta Argentínu í nótt: „Þetta er svona Bucket-list leikur Benfica staðfestir að Mourinho taki við Real Madrid Sjá meira