Heskey ekki með gegn Úkraínu Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 29. mars 2009 12:13 Emile Heskey í leiknum í gær. Nordic Photos / Getty Images
Emile Heskey hefur neyðst til að draga sig úr enska landsliðshópnum fyrir leik Englands gegn Úkraínu í undankeppni HM 2010 á miðvikudagskvöldið. Heskey skoraði fyrsta mark Englands í 4-0 sigri þess á Slóvakíu í vináttulandsleik þjóðanna í gær. Skömmu síðar þurfti hann að fara af velli vegna meiðsla. Carlton Cole, leikmaður West Ham, kom inn á sem varamaður fyrir Heskey en meiddist einnig og verður ekki heldur með á miðvikudaginn. Þá þykir Peter Crouch, sem kom inn á sem varamaður fyrir Cole í leiknum, einnig vera tæpur vegna meiðsla. Fabio Capello landsliðsþjálfari Englands hefur valið Darren Bent, sóknarmann Tottenham, í enska landsliðshópinn vegna þessa en óvíst er hvort að Capello muni fá annan sóknarmann í landsliðshópinn. Þeir Michael Owen hjá Newcastle og Kevin Davies hjá Bolton þykja helst koma til greina en Capello sagði eftir leik í gær að hann myndi ekki velja þá. „Owen spilaði í aðeins 20 mínútur í síðasta leik og það er ekki nóg. Það myndi ekki heldur vera Kevin Davies," sagði Capello. Hann sagði einnig að Rio Ferdinand hefði getað spilað í leiknum í gær en hann hefði ekki viljað taka neina áhættu. Shaun-Wright Phillips hvíldi einnig vegna meiðsla en verður klár á miðvikudaginn. Enskum fjölmiðlum þykir líklegast að Wayne Rooney verði fremsti sóknarmaður Englands í leiknum á miðvikudaginn og að Steven Gerrard verði svo fyrir aftan hann.
Mest lesið Ólafur fékk rautt spjald eftir sjö sekúndur í endurkomunni Handbolti Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Enski boltinn Óvænt hætt sem þjálfari af persónulegum ástæðum Handbolti Slagsmál og allt á suðupunkti þegar Fenerbahçe sló út Lyon Fótbolti Víkingar með bakið upp við vegg Fótbolti Íslenski hópurinn sem fer á Ólympíuleika ungmenna Sport Ótrúlega ósáttur við Val: „Hafa skilið mann eftir einan í myrkrinu“ Handbolti Náði að plata Óskar Örn Sport Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Enski boltinn „Við lögðum leikinn nákvæmlega svona upp“ Fótbolti Fleiri fréttir Sjáðu Breiðablik fara á kostum og valta yfir andstæðing sinn í Evrópu Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Víkingar með bakið upp við vegg Nicolas Jackson á leið til Aston Villa „Við lögðum leikinn nákvæmlega svona upp“ Slagsmál og allt á suðupunkti þegar Fenerbahçe sló út Lyon Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum „Við vorum allar alveg með þetta í dag“ Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Tómas Bent fékk rautt en Hearts fór áfram eftir vítakeppni Orri Steinn kom inn á en Mbappé skoraði þrennu Karólína og Cecilía byrjuðu báðar í tapi Arna, Fanney og Vålerenga með öruggan sigur Sjáðu tvö fyrstu Evrópumörk kvennaliðs FH í sögunni Uppgjörið: Apollon - FH 0-2 | Flottur sigur í sögulegum leik hjá Fimleikafélaginu Uppgjörið: Breiðablik - Csíkszereda 8-1 | Meiriháttar slátrun í Kópavoginum Dagný orðin sendiherra West Ham „Eigum að gera mikið betur í þessu og vitum það manna best“ UEFA hætt við sniðgöngu og evrópskar stelpur mega spila Raheem Sterling ákærður Liðsfélagi Alberts kominn í stríð við félagið Liverpool má ekki taka á móti Real Madrid í Meistaradeildinni Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Dönsk landsliðsstjarna dæmd Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Pirraður Ronaldo tekinn af velli og liðinu gekk betur einum manni færri Bruno Fernandes bestur að mati leikmanna Sjá meira