Fótbolti

Undankeppni HM í kvöld: Samantekt

Michael Ballack skoraði fyrir Þjóðverja í kvöld
Michael Ballack skoraði fyrir Þjóðverja í kvöld Nordic Photos / Getty Images

Fjöldi leikja var á dagskrá í undankeppni HM í kvöld. Hér fyrir neðan verður greint frá því helsta sem gerðist í kvöld.

Evrópumeistarar Spánverjar þurftu ríflega 90 mínútur til að tryggja sér 2-1 sigur á Tyrkjum á útivelli, en liðið hefur nú ekki tapað í 31 leik, eða síðan í nóvember 2006.

Albert Riera skoraði sigurmarkið þegar komið var fram í uppbótartíma en Tyrkir höfðu komist yfir í leiknum. Spánverjarnir hafa unnið alla sex leiki sína í keppninni og eru í góðri stöðu.

Englendingar voru sömuleiðis nokkuð frá sínu besta þegar þeir lögðu Úkraínumenn. John Terry tryggði þeim 2-1 sigur á Úkraínu með marki undir lokin, en Peter Crouch skoraði fyrsta markiði. Andriy Shevchenko jafnaði metin fyrir Úkraínu 16 mínútum fyrir leikslok.

Hollendingar eru líka með fullt hús í sínum riðli og unnu góðan 4-0 sigur á Makedóníumönnum í riðli okkar Íslendinga. Dirk Kuyt skoraði tvívegis fyrir Hollendinga.

Önnur helstu stórveldi Evrópuboltans héldu haus í leikjum sínum í kvöld.

Heimsmeistararnir Ítalir gerðu reyndar 1-1 jafntefli við Íra í Bari þrátt fyrir að vera manni færri lengst af. Giampaolo Pazzini fékk rautt spjald snemma leiks og Robbie Keane jafnaði metin fyrir Íra undir lokin. Ítalska liðið er samt í fínum málum á toppi riðilsins.

Þjóðverjar unnu góðan 2-0 sigur á Wales í Cardiff þar sem Michael Ballack skoraði annað mark Þjóðverja og hitt var sjálfsmark. Frakkar unnu 1-0 sigur á Litháum í París með marki frá Franck Ribery.

Þá réttu Pólverjar úr kútnum eftir tap fyrir Norður-Írum um helgina með því að kjöldraga San Marino 10-0 þar sem Ebi Smolarek skoraði fernu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×