Eiður Smári sá eini sem hefur skorað á móti Skotum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 1. apríl 2009 14:15 Eiður Smári Guðjohnsen í baráttu í síðasta landsleik Íslands á Hampden Park í mars 2003. Mynd/GettyImages
Íslenska karlalandsliðið hefur tapað öllum sex landsleikjum sínum á móti Skotum en þjóðirnar mætast á Hampden Park í kvöld í undankeppni HM. Íslenska liðið hefur aðeins skorað tvö mörk í þessum sex leikjum. Eiður Smári Guðjohnsen hefur skorað í tveimur síðustu landsleikjum á móti Skotum og er eini íslenski landsliðsmaðurinn sem hefur náð að skora á móti Skotum. Markatalan í sex landsleikjum þjóðanna er 2-11 Skotunum í vil. Fyrsti leikur Íslands og Skotlands var á milli áhugamannaliðs Skota og Íslendinga á Laugardalsvellinum 27. júlí 1964. Skotar unnu leikinn 1-0. Sigurmarkið kom sjö mínútum fyrir hálfleik þegar íslenski markvörðurinn blindaðist af kvöldsólinni. Fyrsti leikur þjóðanna í keppni var í undankeppni HM í Mexíkó 1986. Leikurinn fór fram á Hampden Park 17. október 1984 og lauk með 3-0 sigri Skota. Paul McStay skoraði 2 mörk í fyrri hálfleik og Charlie Nicholas innsiglaði sigurinn. Skotar unnu seinni leikinn á Laugardalsvellinum 28. maí 1985 en eina mark leiksins kom ekki fyrr en á 87. mínútu og það skoraði Íslandsvinurinn Jim Bett. Fyrr í leiknum hafi Jim Leighton varið vítaspyrnu frá Teiti Þórðarsyni. Skotar unnu fyrri leikinn í undankeppni EM í Portúgal 2004, 2-0 á Laugardalsvellinum 12. október 2002 og þann síðari, 2-1, 29. mars 2003 eftir að Eiður Smári hafði jafnað leikinn. Síðasti leikur þjóðanna var síðan á Laugardalsvelli 10. september síðastliðinn þar sem Skotar unnu 2-1 eftir að hafa komist í 2-0 eftir klukkutíma leik. Eiður Smári minnkaði muninn úr vítaspyrnu á 77. mínútu. Landsleikir Íslands og Skotlands: Laugardalsvöllur, 27.7.1964 Ísland-Skotland 0-1 Hampden Park, 17.10.1984 Skotland-Ísland 3-0 Laugardalsvöllur, 28.5.1985 Ísland-Skotland 0-1 Laugardalsvöllur, 12.10.2002 Ísland-Skotland 0-2 Hampden Park, 29.3.2003 Skotland-Ísland 2-1 Laugardalsvöllur, 10.9.2008 Ísland-Skotland 1-2 Leikir 6Sigrar Íslands 0Sigrar Skotlands 6Jafntefli 0Mörk Íslands 2Mörk Skotlands 11
Mest lesið Ólafur fékk rautt spjald eftir sjö sekúndur í endurkomunni Handbolti „Þeir eru að fara í Evrópuleik bara til að halda klúbbnum á floti“ Fótbolti Óvænt hætt sem þjálfari af persónulegum ástæðum Handbolti Minnst 447 milljónir í boði fyrir Víkinga í kvöld Fótbolti Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Enski boltinn Slagsmál og allt á suðupunkti þegar Fenerbahçe sló út Lyon Fótbolti Víkingar með bakið upp við vegg Fótbolti Íslenski hópurinn sem fer á Ólympíuleika ungmenna Sport Ótrúlega ósáttur við Val: „Hafa skilið mann eftir einan í myrkrinu“ Handbolti Náði að plata Óskar Örn Sport Fleiri fréttir „Þeir eru að fara í Evrópuleik bara til að halda klúbbnum á floti“ Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Minnst 447 milljónir í boði fyrir Víkinga í kvöld Sjáðu Breiðablik fara á kostum og valta yfir andstæðing sinn í Evrópu Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Víkingar með bakið upp við vegg Nicolas Jackson á leið til Aston Villa „Við lögðum leikinn nákvæmlega svona upp“ Slagsmál og allt á suðupunkti þegar Fenerbahçe sló út Lyon Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum „Við vorum allar alveg með þetta í dag“ Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Tómas Bent fékk rautt en Hearts fór áfram eftir vítakeppni Orri Steinn kom inn á en Mbappé skoraði þrennu Karólína og Cecilía byrjuðu báðar í tapi Arna, Fanney og Vålerenga með öruggan sigur Sjáðu tvö fyrstu Evrópumörk kvennaliðs FH í sögunni Uppgjörið: Apollon - FH 0-2 | Flottur sigur í sögulegum leik hjá Fimleikafélaginu Uppgjörið: Breiðablik - Csíkszereda 8-1 | Meiriháttar slátrun í Kópavoginum Dagný orðin sendiherra West Ham „Eigum að gera mikið betur í þessu og vitum það manna best“ UEFA hætt við sniðgöngu og evrópskar stelpur mega spila Raheem Sterling ákærður Liðsfélagi Alberts kominn í stríð við félagið Liverpool má ekki taka á móti Real Madrid í Meistaradeildinni Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Sjá meira