Fótbolti

Jafntefli hjá Arnóri og Bjarna Þór

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Arnór Smárason, Heerenveen.
Arnór Smárason, Heerenveen. AFP

Heerenveen, lið Arnórs Smárasonar, og Twente, lið Bjarna Þórs Viðarssonar, skildu jöfn, 1-1, í hollenska boltanum í kvöld.

Henriques Paulo kom Heerenveen yfir 13 mínútum fyrir leikslok en Theo Janssen bjargaði stigi fyrir Twente með jöfnunarmarki á lokamínútunni.

Bæði Arnór og Bjarni Þór voru á bekkjum sinna liða en hvorugur þeirra kom við sögu í leiknum.

Heerenveen í fjórða sæti deildarinnar en Twente í öðru sæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×