Innlent

Aldraðir sjálfstæðismenn harma niðurskurð velferðarkerfisins

Halldór Blöndal er nýr formaður Samtaka eldri sjálfstæðismanna.
Halldór Blöndal er nýr formaður Samtaka eldri sjálfstæðismanna.

Halldór Blöndal, fyrrverandi forseti Alþingis og ráðherra, var á dögunum kjörinn formaður Samtaka eldri sjálfstæðismanna. Hann tekur við embættinu af Salóme Þorkelsdóttur sem víkur úr stjórn. Með Halldóri í stjórn eru nú þau Styrmir Gunnarsson varaformaður, Lilja Hallgrímsdóttir, Sigríður Sveinsdóttir , Guðmundur Hallvarðsson, Einar Þorbjörnsson, Margrét S. Einarsdóttir, Guðrún V. Haraldsdóttir og Sveinn Scheving.

Á sama fundi var samþykkt ályktun þar sem núverandi ríkisstjórn er sökuð um að svíkja fyrirheit sín um að standa vörð um velferðarkerfið. Samtök eldri sjálfstæðismanna harma þetta. Þá lýsir SES áhyggjum af frekari niðurskurði í heilbrigðis- og velferðarkerfinu og telur að löngu sé komið að þolmörkum í sparnaði innan heilbrigðiskerfisins. „Þann 1. júlí sl. hóf ríkisstjórnin aðför að velferðarkerfinu með því að skerða verulega greiðslur TR til eldri borgara og öryrkja," segir ennfremur.

Í þriðja lagi mótmælir SES skerðingum sem draga úr lífsgæðum lífeyrisþega landsins. „Þar er m.a. ráðist á helgasta rétt eldri borgara sjálfan grunnlífeyrinn sem allir eiga að fá, burt séð frá tekjum, sem aldrei átti að skerða vegna greiðslna úr lífeyrissjóðum. „Velferðarstjórn" Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra og Steingríms J. Sigfússonar, fjármálaráðherra, réttlætir skerðingarnar með þeim rökum að svo miklar réttarbætur til handa öldruðum og öryrkjum hafi náðst fram á undanförum árum að nauðsynlegt sé að stíga skref til baka við núverandi aðstæður í efnahagsmálum þjóðarinnar!"

SES leggur einnig áherslu á hækkun skattleysismarka sem hefur alltaf verið eitt af baráttumálum samtakanna og bætir til muna hag þeirra sem verst eru settir fjárhagslega og hvetja samtökin til að felldar verði niður skerðingar á lífeyri aldraðra frá TR vegna tekna úr lífeyrissjóðum.

Þá er fyrirhuguðum hækkunum neysluskatta sem koma verst niður á þeim sem þyngsta framfærslu hafa mótmælt auk þess sem hvatt er til þess að tekið verði upp frítekjumark á vaxtatekjur, þannig að ekki verði lagður fjármagnstekjuskattur á vexti af innstæðum sem telja má til eðlilegs varasjóðs. „Jafnframt verði frítekjumark fjármagnstekna til skerðingar á greiðslum frá TR hækkað úr kr. 8.236,66 í kr. 20.000,- á mánuði. Hækkun á frítekjumarki kemur ekki hvað síst til góða því láglaunafólki sem með ráðdeildarsemi hefur tekist að spara til efri áranna."

Að lokum lýsa samtökin yfir stuðningi við frumvarp Sjálfstæðisflokksins um skatt á séreignasparnað í stað skattahækkana.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×