Heljarinnar leit að Óliver 16. júlí 2009 06:00 Eggert og Selma Björns Að leikstýra sjálfum Dúdda er draumur sérhvers leikstjóra, að sögn Selmu. Selma mun, sem helsti sérfræðingur landsins í áheyrnarprufum, standa í ströngu í september þegar leitin mikla að Óliver og 30 drengjum öðrum á aldrinum 9 til 14 ára hefst. fréttablaðið/valli „
Eggert Þorleifsson leikur Fagin. Já, Laddi lék hann á sínum tíma. Ég er ótrúlega ánægð með að fá Eggert í hlutverkið. Hef verið mikill aðdáandi hans frá fornri tíð. Að fá að leikstýra Dúdda úr Með allt á hreinu hlýtur að vera draumur sérhvers leikstjóra,“ segir Selma Björnsdóttir leikstjóri. Einhver stærsta sýning Þjóðleikhússins á næsta leikári er Óliver sem byggir á sögu Charles Dickens – Óliver Twist. Selma mun leikstýra sýningunni. Vytautas Narbutas mun hanna leikmynd, Bob Richard hefur umsjón með sviðshreyfingum, Jóhann G. Jóhannsson er tónlistarstjóri og María Ólafsdóttir sér um búninga. Óliver var síðast á fjölum Þjóðleikhússins árið 1989 og þá lék Laddi eina eftirminnilegustu persónu heimsbókmenntanna – Fagin – þann sem gerir út glæpagengi drengja. Selma segist vera búin að skipa í helstu hlutverk og segir frá því að Vigdís Hrefna Pálsdóttir muni leika Nancy. En hin miðlæga persóna verksins, sá sem allt hverfist um, drengurinn sem fer á munaðarleysingjahæli og lendir í flokki vasaþjófa og smáglæpamanna Fagsins – Óliver – er ófundinn. Framundan er mikil leit, ekki aðeins að honum heldur einnig Hrappi og hinum krökkunum á munaðarleysingjahælinu. Alls gætu þetta verið um þrjátíu drengir á aldrinum 9 til 14 ára sem Þjóðleikhúsið mun ráða til að dansa, syngja og auðvitað leika í Óliver. „Þetta verður heljarinnar leit. Við erum að leita að „múltitalenteruðum“ drengjum,“ segir Selma. En Þjóðleikhúsið mun í september gangast fyrir miklum prufum og sé að marka þá miklu ásókn sem verið hefur í áheyrnarprufur í tengslum við hinar og þessar sýningar og keppnir má búast við því að handagangur verði í öskjunni. Selma er að verða einhver helsti sérfræðingur Íslands þegar áheyrnarprufur eru annars vegar. Til dæmis í tengslum við sýninguna Grease, sem Selma leikstýrði, og svo Idol-þættina þar sem Selma var einn dómara. „Já, ég hef verið viðstödd þær nokkrar. Það er alltaf gaman að taka þátt í því að leita að óslípuðum demöntum. Alltaf er einn og einn sem maður sér sem maður hefur ekki heyrt í áður sem reynist ótrúlega mikið talent. Það er alltaf þess virði að vera með svona prufur,“ segir Selma. Og það vex henni hreint ekki í augum að starfa með stórum hópi unglingspilta – þjóðfélagshópi sem hefur á sér það orð að vera ódælli en gengur og gerist meðal homo sapiens tegundarinnar. „Ég er vön að vinna með börnum og unglingum. Finnst það ótrúlega skemmtilegt. Þau hafa reynst vinnuglatt og agað fólk sem hefur áhuga á viðfangsefninu. Áhuginn skín alltaf í gegn og maður reynir að velja þannig fólk með sér.“ jakob@frettabladid.is
Mest lesið Nicole er fyrir norðan Lífið Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Lífið Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Lífið Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Lífið Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Fleiri fréttir Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Sjá meira