Innlent

Segir bréfið sýna hve vel hagsmuna Íslands var gætt

Leiðtogar stjórnarandstöðunnar, Bjarni Benediktsson, Birgitta Jónsdóttir og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, funda í Alþingishúsinu.fréttablaðið/gva
Leiðtogar stjórnarandstöðunnar, Bjarni Benediktsson, Birgitta Jónsdóttir og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, funda í Alþingishúsinu.fréttablaðið/gva

Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra segir eðlilega hafa verið staðið að samskiptum Indriða H. Þorlákssonar, þáverandi ráðuneytisstjóra í fjármálaráðuneytinu, og Marks Flanagan, yfirmanns sendinefndar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) á Íslandi, og Franeks Rozwadowski, fulltrúa sjóðsins hér á landi. Indriði sendi þeim tölvubréf og óskaði stuðnings við nýja hugmynd um lausn Icesave-deilunnar.

„Bréfið, sem hefur verið alþingismönnum aðgengilegt frá í sumar, er mjög góður vitnisburður um hvernig verið var að reyna að gæta okkar hagsmuna og halda öllu til haga, þar á meðal hryðjuverkalögum Breta. Þannig var reynt að þvinga málið í betri farveg en það var í,“ segir Steingrímur. Hann segir bréfið árétta að fyrri hugmyndir um lausn málsins séu óásættanlegar og AGS sé haldið upplýstum um gang málsins.

Steingrímur segist hafa upplýst utanríkismálanefnd um stöðu mála og muna vel eftir fundi í apríl þar sem þessi sjónarmið hafi verið reifuð. „Ég man vel eftir umræðum í utanríkismálanefnd sem urðu í framhaldinu, þar sem menn ræddu stöðuna og möguleikana. Það var gert út frá því að menn væru enn að leita lausna á grundvelli pólitísks samkomulags, samanber þann farveg sem málið var sett í í vetur.“

Í bréfi Indriða segir að ómögulegt sé að komast að samkomulagi í þeim dúr sem um hafi verið rætt fyrir kosningar í apríl og „mögulega erfitt í þónokkurn tíma eftir kosningar...“ Bréfið var sent 13. apríl. Indriði segir þarna vísað til þess að Bretar og Hollendingar hafi mjög þrýst á lausn í anda minnisblaðs sem undirritað hafi verið í nóvember. Það hafi kveðið á um 6,7 prósent vexti.

„Þarna leggjum við til nýja nálgun og tökum fram að samningar á fyrri grunni séu pólitískt ómögulegir fyrir kosningar og líklega lengi eftir þær. Þetta er undirstrikað til að leggja meiri áherslu á að fyrri nálgun dugaði ekki.“

Nokkra athygli hefur vakið að Indriði gaf persónulegt netfang sitt upp í lok bréfsins. Það var gert, að hans sögn, vegna þess að hann var á ferðalagi í Kaupmannahöfn og hafði betri aðgang að því pósthólfi. Svarbréfið hafi komið á embættisnetfang sem hann hafi komist í í gegnum kerfi í íslenska sendiráðinu. Indriði segir engin samskipti hafa orðið á milli hans og fulltrúa sjóðsins á hans persónulega netfangi.

kolbeinn@frettabladid.is

steingrímur j. sigfússon



Fleiri fréttir

Sjá meira


×