Innlent

Samfylkingarmenn á Akureyri efna til prófkjörs

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Akureyri/ Mynd/ Vilhelm.
Akureyri/ Mynd/ Vilhelm.
Félagsfundur Samfylkingarinnar á Akureyri ákvað í kvöld að halda opið rafrænt prófkjör þann 30. janúar næstkomandi um efstu fimm sætin á lista flokkins í sveitastjórnarkosningunum næsta vor.

Þá var kosin prófkjörsstjórn sem falið var að fullmóta og ganga frá reglum prófkjörsins í samræmi við niðurstöður félagsfundar og sjá um framkvæmd þess.

Auk þess var kosin uppstillingarnefnd sem ætlað er það hlutverk að stilla upp í sæti 6 - 22 að loknu prófkjöri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×