Iwelumo vill sanna sig gegn Íslandi Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 31. mars 2009 21:30 Chris Iwelumo brennir á færinu fræga gegn Norðmönnum. Nordic Photos / Getty Images
Chris Iwelumo, leikmaður Wolves og skoska landsliðsins, vill ólmur fá tækifæri til að sanna sig í skoska landsliðsbúningnum er liðið mætir því íslenska á Hampden Park á morgun. Þegar Skotland lék við Holland um helgina stillti George Burley landsliðsþjálfari upp nokkuð varnarsinnuðu liði með Kenny Miller einan í framlínunni. Það þykir líklegt að Burley muni stilla upp sókndjarfara liði á morgun og jafnvel með tvo framherja - Miller og Iwelumo. Iwelumo öðlaðist heimsfrægð þegar hann brenndi af algeru dauðafæri í markalausu jafntefli Skota og Norðmanna fyrr í undankeppninni en myndbrot af atvikinu fór um internetið eins og eldur í sinu. „Þessi leikur verður mjög frábrugðinn leiknum gegn Hollandi," sagði Iwelumo í samtali við skoska fjölmiðla. „Ég á von á því að við sækjum á tveimur mönnum en ekki einum og að við verðum meira með boltann. Það er undir okkur komið að stýra spilinu í leiknum." „Ég held að við munum spila samkvæmt 4-4-2 leikkerfinu. En það er bara mín skoðun. En miðað við það sem ég hef heyrt tel ég að það verði tilfellið." „Við erum með sjálfsöryggið í lagi og á miðvikudaginn vona ég að við getum tryggt þjálfaranum hans fyrsta sigur á Hampden Park." Síðan George Burley tók við skoska landsliðinu hefur það fjórum sinnum leikið á Hampden Park. Þar af hefur liðið gert þrjú jafntefli og tapað einum leik. Skotar hafa ekki skorað síðan fyrsta leiknum af þessum fjórum en það var 1-1 jafntefli gegn Króatíu. Iwelumo sagðist enn fremur þekkja ágætlega til íslenska liðsins. „Það vita allir hvað Eiður Guðjohnsen getur. Það skiptir engu þótt við sækjum stíft á þá allan leikinn - hann getur alltaf breytt gangi leiksins. Það eru líka fleiri góðir leikmenn í þessu liði eins og í öllum öðrum liðum." „Finnar sýndu gegn Wales að það er allt hægt í þessu. Við erum að fara að mæta bestu leikmönnum Íslands í þessum leik og þeir hafa spilað um allan heim." „Við vitum vel að það er pressa á okkur en það er þannig í hverjum einasta leik."
Mest lesið Slagsmál og allt á suðupunkti þegar Fenerbahçe sló út Lyon Fótbolti Íslenski hópurinn sem fer á Ólympíuleika ungmenna Sport Náði að plata Óskar Örn Sport Víkingar með bakið upp við vegg Fótbolti „Við lögðum leikinn nákvæmlega svona upp“ Fótbolti Ótrúlega ósáttur við Val: „Hafa skilið mann eftir einan í myrkrinu“ Handbolti Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Enski boltinn Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Enski boltinn Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Enski boltinn Tómas Bent fékk rautt en Hearts fór áfram eftir vítakeppni Fótbolti Fleiri fréttir Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Víkingar með bakið upp við vegg Nicolas Jackson á leið til Aston Villa „Við lögðum leikinn nákvæmlega svona upp“ Slagsmál og allt á suðupunkti þegar Fenerbahçe sló út Lyon Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum „Við vorum allar alveg með þetta í dag“ Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Tómas Bent fékk rautt en Hearts fór áfram eftir vítakeppni Orri Steinn kom inn á en Mbappé skoraði þrennu Karólína og Cecilía byrjuðu báðar í tapi Arna, Fanney og Vålerenga með öruggan sigur Sjáðu tvö fyrstu Evrópumörk kvennaliðs FH í sögunni Uppgjörið: Apollon - FH 0-2 | Flottur sigur í sögulegum leik hjá Fimleikafélaginu Uppgjörið: Breiðablik - Csíkszereda 8-1 | Meiriháttar slátrun í Kópavoginum Dagný orðin sendiherra West Ham „Eigum að gera mikið betur í þessu og vitum það manna best“ UEFA hætt við sniðgöngu og evrópskar stelpur mega spila Raheem Sterling ákærður Liðsfélagi Alberts kominn í stríð við félagið Liverpool má ekki taka á móti Real Madrid í Meistaradeildinni Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Dönsk landsliðsstjarna dæmd Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Pirraður Ronaldo tekinn af velli og liðinu gekk betur einum manni færri Bruno Fernandes bestur að mati leikmanna Dramatík í undankeppni Meistaradeildarinnar Sjá meira