Drillo kemur í Laugardalinn í haust Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 31. mars 2009 12:45 Egil „Drillo" Olsen verður áfram með norska landsliðið. Mynd/GettyImages
Norska knattspyrnusambandið hefur ákveðið að Egil „Drillo" Olsen muni stjórna norska fótboltalandsliðinu út undankeppni HM í Suður-Afríku en Norðmenn eru eins og kunnugt með Íslendingum í riðli. „Það sem við höfum séð hingað til er nógu gott til þess að Egil Olsen verði áfram landsliðsþjálfari út undankeppnina," sagði í yfirlýsingu frá Sondre Kaafjord, forseta norska sambandsins. Það er því ljóst að Drillo kemur með norska landsliðið í Laugardalinn í byrjun september en hann var fyrst fenginn til að stjórna norska landsliðinu á meðan leitað var að nýjum þjálfara. Ísland og Noregur mætast á Laugardalsvellinum 5. september og er það lokaleikur Íslands í undankeppninni. Norðmenn eru eins og er neðstir í riðlinum með aðeins tvö stig í þremur leikjum en landsliðið vann ekki einn einasta landsleik á síðasta ári. Í kjölfar þess var Åge Hareide rekinn eftir að hafa þjálfað landsliðið frá 2003. Egil „Drillo" Olsen stjórnaði norska landsliðinu í fyrra skiptið frá 1990-98 og undir hans stjórn komst liðið inn á tvær heimsmeistarakeppnir (1994 og 1998) og fór hæst í annað sætið á Styrkleikalista FIFA. Olsen hefur stjórnað liðinu í tveimur landsleikjum síðan að hann tók tímabundið við landsliðinu, sigri gegn Þjóðverjum og svo tapi gegn Suður-Afríku um helgina. Alls hefur Noregur spilað 93 landsleiki undir hans stjórn og aðeins tapað 15 þeirra. Norðmenn mæta Finnum í vináttuleik í Osló á morgun. Leikurinn fer fram Ullevaal-leikvanginum þar sem landsliðið hefur ekki tapað undir stjórn Drillo síðan árið 1991.
Mest lesið Ólafur fékk rautt spjald eftir sjö sekúndur í endurkomunni Handbolti Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Enski boltinn Slagsmál og allt á suðupunkti þegar Fenerbahçe sló út Lyon Fótbolti Víkingar með bakið upp við vegg Fótbolti Náði að plata Óskar Örn Sport Ótrúlega ósáttur við Val: „Hafa skilið mann eftir einan í myrkrinu“ Handbolti Íslenski hópurinn sem fer á Ólympíuleika ungmenna Sport „Við lögðum leikinn nákvæmlega svona upp“ Fótbolti Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Enski boltinn Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Enski boltinn Fleiri fréttir Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Víkingar með bakið upp við vegg Nicolas Jackson á leið til Aston Villa „Við lögðum leikinn nákvæmlega svona upp“ Slagsmál og allt á suðupunkti þegar Fenerbahçe sló út Lyon Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum „Við vorum allar alveg með þetta í dag“ Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Tómas Bent fékk rautt en Hearts fór áfram eftir vítakeppni Orri Steinn kom inn á en Mbappé skoraði þrennu Karólína og Cecilía byrjuðu báðar í tapi Arna, Fanney og Vålerenga með öruggan sigur Sjáðu tvö fyrstu Evrópumörk kvennaliðs FH í sögunni Uppgjörið: Apollon - FH 0-2 | Flottur sigur í sögulegum leik hjá Fimleikafélaginu Uppgjörið: Breiðablik - Csíkszereda 8-1 | Meiriháttar slátrun í Kópavoginum Dagný orðin sendiherra West Ham „Eigum að gera mikið betur í þessu og vitum það manna best“ UEFA hætt við sniðgöngu og evrópskar stelpur mega spila Raheem Sterling ákærður Liðsfélagi Alberts kominn í stríð við félagið Liverpool má ekki taka á móti Real Madrid í Meistaradeildinni Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Dönsk landsliðsstjarna dæmd Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Pirraður Ronaldo tekinn af velli og liðinu gekk betur einum manni færri Bruno Fernandes bestur að mati leikmanna Dramatík í undankeppni Meistaradeildarinnar Sjá meira