Drykkjufélagarnir gætu átt afturkvæmt til Rangers Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 16. apríl 2009 10:03 Barry Ferguson í leik með skoska landsliðinu. Nordic Photos / Getty Images
Walter Smith, knattspyrnustjóri Rangers, hefur gefið í skyn að þeir Barry Ferguson og Allan McGregor gætu snúið til baka í lið félagsins. Þeir Ferguson og Rangers vöktu hneykslan margra með framkomu sinni í kringum landsleiki Skota gegn Hollandi og Íslandi um mánaðamótin síðustu. Þeir fóru á fyllerí eftir leikinn gegn Hollandi og máttu vegna þess dúsa á varamannabekknum gegn Íslandi. Daginn eftir leikinn gegn Íslandi birtist myndir af þeim á útsíðum allra helstu dagblaða í Skotlandi þar sem þeir mynduðu hið svokallaða V-merki sem þykir afar móðgandi tákn í Bretlandi. Í kjölfarið voru þeir settir í ævilangt bann hjá skoska landsliðinu. Walter Smith, stjóri Rangers, ákvað að senda þá í tveggja vikna launalaust leyfi og töldu margir að dagar þeirra hjá félaginu væru taldir. Smith tók þar að auki fyrirliðabandið af Ferguson, rétt eins og hafði verið gert hjá skoska landsliðinu. Hann segir þó nú að hann hafi ef til vill verið of harkalegur í garð þeirra tveggja. „Ég sagði blaðamönnum „off the record" að þeir myndu ekki spila með Rangers aftur." „Síðan þá hef ég hugsað um málið og hvernig skoska knattspyrnusambandið tók á því. Bæði forseti sambandsins og landsliðsþjálfari hafa sagt að ekki hafi verið tekið rétt á upphaflega vandamálinu." „Ég hef því spurt sjálfan mig af því hvort ég hafi verið of harkalegur í mínum aðgerðum. Ef þeir sem hafa völdin segja að ekki hafi verið tekið rétt á málinu finnst mér að ég verði að sýna þeim vægð." „Ég hef rétt á því að skipta um skoðun," sagði Smith. „En það sem ég er að segja er að þeir koma til greina í liðsvali mínu á nýjan leik - ekki endilega að þeir muni spila." Smith gagnrýndi einnig skoska knattspyrnusambandið fyrir að láta þá Ferguson og McGregor eina taka sökina. „Það voru sex leikmenn sem flæktust í málið og aðeins tveir fengu alla sökina. Svo virðist sem að skoska knattspyrnusambandið telji að enginn glæpur hafi verið framinn ef sökudólgarnir yfirgefa vettvang glæpsins nægilega snemma."
Fótbolti Mest lesið Læti í göngunum og Hermann sakaður um að slá til KR-ings Íslenski boltinn „Eins og stúdentsprófin í MR“ Íslenski boltinn „Það fer í taugarnar á mér“ Íslenski boltinn Golfsveifla Sigmundar Davíðs heldur hægri sinnuð Golf Fullkomnuðu endurkomuna og hentu Boston út Körfubolti Isak aftur meiddur Enski boltinn Hélt á lofti og lofaði Newcastle að Sádarnir myndu ekki selja Enski boltinn Valur - KR 1-4 | Grýlan dauð Íslenski boltinn Tatum bættist óvænt við meiðslalistann fyrir oddaleikinn Körfubolti Eyjakonan lagði Sveindísi Fótbolti Fleiri fréttir Sjáðu mörk KR-inga á Hlíðarenda Læti í göngunum og Hermann sakaður um að slá til KR-ings Isak aftur meiddur Eyjakonan lagði Sveindísi Sjáðu öll mörkin úr enska boltanum: Gyökeres og Saka í banastuði fyrir Skytturnar Hélt á lofti og lofaði Newcastle að Sádarnir myndu ekki selja Valur - KR 1-4 | Grýlan dauð „Eins og stúdentsprófin í MR“ „Það fer í taugarnar á mér“ Espanyol getur gert Barcelona að meisturum á morgun „Erum með montréttinn á Akureyri“ Valgeir sá Schalke fara upp í úrvalsdeild „Gerist eiginlega ekki betra“ Logi fagnaði stórsigri gegn Galatasaray „Ingason sýningin“ í öruggum sigri Brann Bayern og PSG hvíldu sig vel fyrir seinni leikinn Benóný lauk deildinni á marki og fer í umspilið Skytturnar með sex stiga forystu á toppnum Tap West Ham gefur Tottenham von Þór Ak. - KA 0-1 | Hallgrímur tryggði sætan sigur Lögðu Arsenal og fara í úrslit Meistaradeildarinnar Afar óvænt tap Íslendingaliðsins Hollywood-liðið missir af umspili og Ipswich í ensku úrvalsdeildina „Aðeins loðað við okkur að mikið sé gert úr öllu“ „Held að Valur sæki engan gríðarlegan styrk í það“ Sjáðu mörkin síðast þegar Þór og KA áttust við Situr límdur við skjáinn yfir leikjum KR Guardiola léttur: „Slakir þjálfarar og skítaleikmenn“ Laun Infantino meira en þrefaldast á áratug Þróttur og HK á toppnum Sjá meira