Innlent

Mjög raunhæf skilyrði fyrir ESB aðild

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Eiríkur Bergmann Einarsson.
Eiríkur Bergmann Einarsson.

Einungis þarf að semja sérstaklega um tvö til þrjú skilyrði af þeim níu sem sett eru fyrir inngöngu í Evrópusambandið í ályktun Framsóknarflokksins. Þetta segir Eiríkur Bergmann Einarsson, forstöðumaður Evrópufræðaseturs á Bifröst.

Þrjú skilyrði sem semja þarf um

Eiríkur telur ályktun framsóknarmanna vel geta verið raunhæfa. „Hún getur alveg verið það. Það er í sjálfu sér ekkert í þessum skilyrðum sem ekki er vanalegt að menn semji um í aðildarviðræðum," segir Eiríkur. Hann segir ekkert vera í skilyrðum framsóknarmanna sem gangi gegn því grundvallarprinsippi að menn taki þátt í því samstarfi sem Evrópusambandið standi fyrir. „Maður verður líka að gera sér grein fyrir því að öll ríki sem hafa samið um samstarf í Evrópusambandinu hafa haft einhverja tiltekna hagsmuni sem þeir hafa getað samið um sérlausnir út af. Það er ekki til sá aðildarsamningur þar sem engu hefur verið hnikað til," segir Eiríkur.

Eiríkur telur að þau skilyrði í ályktun Framsóknarmanna sem semja þyrfti um séu skilyrðin varðandi sjávarútvegsstefnu og skilyrði um varanlegan rétt Íslendinga til að setja lög um forgangsrétt manna með lögheimili á Íslandi til að eiga ráðandi hlut í jarðeignum, lóðum, fasteignum og atvinnufyrirtækjum. Þá segir Eiríkur að hugsanlega þyrfti að semja um skilyrði varðandi það að fæðuöryggi þjóðarinnar yrði tryggt og viðurkennd yrði nauðsyn á sérstökum ákvæðum vegna fámennis þjóðarinnar. Eiríkur segir að þetta atriði sé hins vegar óskýrt í ályktun framsóknarmanna og það þurfi að skilgreina betur. Eiríkur segir að önnur skilyrði sem nefnd eru í ályktun framsóknarmanna séu nú þegar til staðar og því þurfi í raun ekkert að semja um þau sérstaklega.

Sterk rök fyrir að Íslendingar stjórni fiskveiðum

„Varðandi þetta með sjávarútveginn að þá gleyma menn því oft að fyrir um 10 árum komu fulltrúar ESB fram með tiltekna hugmynd sem var að gera fiskinn við Ísland að sérstöku stjórnsýslusvæði innan sameiginlegu sjávarútvegsstefnunnar. Það voru færð fyrir þessu sömu rök og að gera landbúnað norðan 62. breiddargráðu frábrugðin landbúnaði sunnan 62. breiddargráðu. Það varð til hugmyndin um heimskautalandbúnað. Þar sem aðstæður á einu svæði voru frábrugðin því sem annars staðar giltu," segir Eiríkur. Hann segir að þarna séu komin rök fyrir því að beita sjávarútvegsstefnunni með öðrum hætti þannig að yfirstjórn veiðanna verði eftir sem áður í höndum Íslendinga. „Það sem hérna kemur fram hjá framsóknarmönnum passar undir þessa hugmynd. En hvort að við náum því markmiði er engin leið til að segja til um. En það er í það minnsta engin leið til að segja fyrir um fyrr en í aðildarviðræðum," segir Eiríkur.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×