Haraldur til skoðunar hjá ÍA Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 29. apríl 2008 16:13 Guðjón Þórðarson, þjálfari ÍA. Mynd/Daníel
Haraldur Björnsson, markvörður hjá Hearts í Skotlandi, er nú í skoðun hjá ÍA sem er á höttunum eftir markverði til að leysa hinn meidda Pál Gísla Jónsson af hólmi. Guðjón Þórðarson, þjálfari ÍA, sagði í samtali við Vísi í dag að félagið ætti í viðræðum við Hearts og að málið myndi skýrast á allra næstu dögum. „Hann æfði með okkur í gær en hann er ekki í sínu besta formi þar sem hann hefur átt við meiðsli að stríða. Við viljum því ganga úr skugga um að hann sé alveg heill." „En hann gæti verið góður kostur fyrir okkur. Mér líst vel á drenginn enda geðþekkur piltur. Það er fleira sem mælir með þessu en á móti." Þá hafa Skagamenn lánað hinn nítján ára Gísla Frey Brynjarsson til Víkings á Ólafsvík. „Það hefur aukist samkeppnin um framherjastöður í liðinu og teljum við að þetta gæti orðið gott fyrir hann að fá að spreyta sig þar." Landsbankadeild karla hefst annan laugardag og segist Guðjón hlakka til mótsins. „Ef við skoðum hvernig liðið var á þessum tímapunkti í fyrra og í ár þá erum við mun ánægðari nú. Það er helst að maður hafi áhyggjur af hitastiginu. Það væri gott að fá smá rigningu núna enda þarf að huga vel að grasinu." Margir spá ÍA góðu gengi í sumar en Guðjón gefur lítið fyrir alla spádóma. „Talk is cheap. Það er bara eitt tungumál sem skilst í þessu."
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Töpuðu 15-0 í síðasta leik og mættu ekki til leiks í gær Íslenski boltinn Fernandes ósáttur: „Dómarinn baðst ekki afsökunar“ Enski boltinn Fjármagnar tennisferilinn á OnlyFans Sport Botna lítið í Amorim: „Hann er ein taugahrúga“ Enski boltinn Sjáðu Grealish fara á kostum og öll mörkin í gær Enski boltinn Tilfinningaþrungin stund þegar Magnús Máni kom í mark Sport Rooney feginn að Dowman tók ekki vítið Enski boltinn Fáni stuðningsmanna Palace til rannsóknar Fótbolti Eins og kleina þegar hún upplifði martröð spyrilsins Fótbolti Isak utan vallar en þó í forgrunni Enski boltinn Fleiri fréttir Töpuðu 15-0 í síðasta leik og mættu ekki til leiks í gær Uppgjörið: FH - ÍBV 1-1 | Alvöru dramatík í uppbótartíma Uppgjörið: KA - Fram 2-0 | Sanngjarn sigur heimamanna Myndaveisla frá sögulegri stund Vestra „Það er æfing á morgun“ „Flottasta mark sem ég hef skorað á ferlinum“ Patrick sleit hásin og verður frá út tímabilið „Lið úr bæ þar sem eru fleiri fiskar og kindur en fólk“ Uppgjörið: Valur - Vestri 0-1 | Vestri bikarmeistari í fyrsta sinn Uppgjörið: Breiðablik - Tindastóll 5-0 | Blikar fóru illa með laskaða Stóla Sjáðu mörkin: Borðtennis í Garðabæ og tveggja mánaða bið tók enda á Akureyri „Erum við virkilega í fituprósentum 2025?“ „Spark í rassinn til að gíra okkur upp í þetta“ „Stór og merkilegur viðburður fyrir okkur“ „Vilji, kraftur, ákveðni og hugarfar hjá mínum stelpum“ Arna Eiríksdóttir: „Við töpuðum tveimur stigum í dag“ Uppgjör og vitöl: Stjarnan-FH 2-2 | FH að missa Blikana frá sér Uppgjör: Þór/KA-FHL 4-0 | Norðankonur í stuði á móti botnliðinu Fá góðar fréttir fyrir stærsta leik í sögu félagsins „Af hverju er Tómas Orri ekki að að spila í Breiðabliki?“ Ólafur Kristjáns: Þá vitum við að hún er ekkert að grínast Uppgjörið: Fram - Víkingur 2-5 | Markasúpa er Víkingar komust aftur á sigurbraut Uppgjör og viðtöl: Þróttur-Valur 0-2 | Valskonur á siglingu Áhorfandi hrækti á dómara í Garðabæ Úlfur talinn sá allra besti vestanhafs „Guð hvað ég hafði rangt fyrir mér og ég er ánægður með það“ Bræðraslagur í bikarúrslitaleiknum í ár: „Er alltaf að reyna að ögra mér“ KSÍ opið fyrir sjálfkrafa bönnum en reglubreyting ekki í vinnslu Valsmenn bara mannlegir? „Ég ætla ekki í eina einustu tæklingu hérna“ Tvö mörk með fyrstu tveimur snertingunum Sjá meira