FH vann KR í hörkuleik Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 10. ágúst 2008 16:56 FH-ingar fögnuðu sigri á KR-vellinum í dag. Mynd/Vilhelm
FH vann í dag 2-1 sigur á KR og náði þannig fjögurra stiga forystu á toppi Landsbankadeildar karla. Bjarni Guðjónsson fékk að líta rauða spjaldið undir lok leiksins. Eins og alltaf fylgdist Boltavakt Vísis og Fréttablaðsins náið með leiknum. Smelltu hér til að komast á Miðstöð Boltavaktarinnar og lesa meira um leikinn. FH skoraði tvívegis í fyrri hálfleik. Fyrst skoraði Tryggvi Guðmundsson úr vítaspyrnu sem var dæmd á Jordao Diogo fyrir að handleika knöttinn. Skömmu áður hafði Tryggvi lagt upp dauðafæri fyrir Matthías Guðmundsson sem hann náði ekki að nýta þó svo að hann hafi staðið einn fyrir opnu marki. Leikurinn var hraður og skemmtilegur og á 29. mínútu skoruðu FH-ingar öðru sinni eftir laglega sókn. Hún endaði með því að Höskuldur Eiríksson gaf á Matthías sem skoraði með glæsilegu viðstöðulausu skoti úr miðjum vítateignum. Greinilegt er að KR-ingar sakna Péturs Marteinssonar sem er ekki með KR í dag. Gunnlaugur Jónsson hefur tekið stöðu hans í vörninni en þetta er hans fyrsti leikur í langan tíma. Bæði lið fengu þar að auki mörg færi í leiknum. Tryggvi átti skot í stöng og KR-ingurinn Guðjón Baldvinsson komst einn í gegnum vörn FH-inga en lét Gunnar Sigurðsson verja frá sér. FH-ingar hófu síðari hálfleikinn á því að sækja stíft en án þess þó að ná að skora þriðja skiptið. Það hefði getað reynst þeim dýrkeypt því KR náði að minnka muninn þegar 25 mínútur voru til leiksloka. Guðmundur Reynir Gunnarsson var þar af verki með laglegu skoti. Undir lok leiksins fékk svo Bjarni Guðjónsson að líta rauða spjaldið sem og Sigursteinn Gíslason, aðstoðarþjálfari KR-inga.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Willum mættur fyrstur upp á spítala alla daga Sport Kristján hafði betur gegn Fjallinu og er sterkasti maður Íslands Sport Í hóp lufsulegra lánsmanna Liverpool Enski boltinn Höfuðhöggin á ferlinum valdi heilabilun Sport Mætti þrátt fyrir ráð um annað í skugga ásakana Enski boltinn 16 ára setti vallarmet á Íslandsmótinu Golf Var launahæstur í sögunni í tvo daga Sport Aðför að forsetanum segir FIFA í harðorðri yfirlýsingu Fótbolti Hefur enn trú á sjálfum sér: „Finnst fólkið vera á bakvið okkur“ Íslenski boltinn Ellefu ensk lið í eldlínunni víðsvegar um heim Enski boltinn Fleiri fréttir Hefur enn trú á sjálfum sér: „Finnst fólkið vera á bakvið okkur“ Framherjaleit Breiðabliks lokið Þrótti mistókst að fara á toppinn Erlingur Agnars í FH Sjáðu fernu Emmu og gífurlega mikilvægt mark Vals Martraðardvöl Blika: „Tekið á andlega og líkamlega“ Afturelding á toppinn eftir stórsigur og tap Fylkis Uppgjörið: Valur-Víkingur 1-0 | Fyrsti sigur Vals síðan 25. maí „Var bara eitthvað með hann ógeðslega lengi og svo bara skoraði ég“ Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík-ÍBV 4-2 | Draumahálfleikur Emmu kláraði ÍBV Uppgjörið: Þór/KA-Fram 2-0 | Ungi miðvörðurinn hetja norðankvenna Víkingar kaupa Hrannar Snæ frá Noregi Valur í brekku: „Ýtum öllu sem er í gangi til hliðar“ Markvörður Breiðabliks spilaði sem útileikmaður Uppgjörið: Stjarnan - Þróttur 1-1 | Sanngjarnt jafntefli Óskar Smári: „Óþolandi að vinna ekki heima“ Tveir erlendir leikmenn yfirgefa Keflavík Ekki sammála Lárusi þá og ekki núna: „Þetta er bara heimskulegt“ Líkti frammistöðu KA við tíma sinn í Mjólkursamsölunni Tekur skóna af hillunni til að hjálpa Þrótti Sjáðu kveðjumark Kjartans Kára fyrir FH og Keflavík klára KA á níu mínútum „Leik eftir leik mæta þeir til leiks með núll ákefð, núll hjarta og ekkert hungur“ Kjartan Kári á leiðinni í Víking Uppgjörið: FH - KR 1-1 | Ótrúlegt að KR hafi ekki unnið „Það er skellur“ Uppgjörið: Keflavík-KA 3-0 | Þrjú mörk á níu mínútum kláraði KA Sjáðu markið sem lyfti Þór af botninum FH fær danskan framherja Spenntur að mæta KR í fyrsta sinn „Okkar lang slakasti hálfleikur síðan ég tók við“ Sjá meira