Góður sigur Fram á Fjölni Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 27. ágúst 2008 22:08 Ívar Björnsson skoraði tvö marka Fram gegn Fjölni í kvöld.
Fram vann í kvöld 3-1 sigur á Fjölni í Landsbankadeild karla í kvöld. Ívar Björnsson skoraði tvö marka Fram. Paul McShane var einnig á skotskónum fyrir Fram í kvöld en Ásgeir Aron Ásgeirsson skoraði mark Fjölnismanna. Leikurinn fór afar rólega af stað en um miðbik hálfleiksins tóku Framarar völdin og komust svo verðskuldað yfir á 37. mínútu með marki Ívars eftir góðan undirbúning Joe Tillen. Tillen fékk svo gott tækifæri til að koma Fram í 2-0 undir lok fyrri hálfleiksins en Þórður Ingason varði vel frá honum. Fjölnismenn byrjuðu síðari hálfleikinn af krafti og náðu að jafna metin á 56. mínútu. Ásgeir skallaði þá hornspyrnu Tómasar Leifssonar í netið. En aðeins fjórum mínútum síðar skoraði Fram öðru sinni en Paul McShane var þar að verki með góðu langskoti. Á 64. mínútu kláraði svo Ívar leikinn með því að skora með skoti utan vítateigs eftir að hann slapp inn fyrir vörn Fjölnis eftir stungusendingu Heiðars Geirs Júlíussonar. Eftir það voru Framarar nær því að bæta við ef eitthvað var en innbyrtu að lokum öruggan sigur. Fram endurheimti þar með fjórða sætið í deildinni sem KR-ingar komust í um stundarsakir í kvöld eftir sigur á Fylkismönnum. Fram er með 31 stig, einu stigi á eftir Val sem á leik til góða. Fjölnir á enn eftir að vinna leik í síðari umferð mótsins og er með 22 stig í áttunda sæti deildarinnar. Fylgst var með leiknum á Boltavakt Vísis og Fréttablaðsins og má lesa nánar um gang leiksins þar.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Nýjar upplýsingar um heilsufar Michaels Schumacher Formúla 1 Óvinur Íslands: „Aldrei stríða heilu landi“ Handbolti Þetta er ástæða þess að Ísland er í efsta sæti í milliriðlinum Handbolti Ánægðir með stælana í Hauki: „Sagði bara fokkaðu þér“ Handbolti Dregur til baka ummæli sín um Gísla Þorgeir Handbolti „Við mættum ótrúlega góðu íslensku liði í dag“ Handbolti Sænska goðsögnin: Þeir hafa ekki viljann sem Íslendingar hafa Handbolti Ekki gerst hjá Arsenal í átján ár Enski boltinn „Svo kemur Ómar Ingi og fer að spila eins og Viggó“ Handbolti Dagur vann líka og nú eru fjögur lið með fjögur stig í íslenska riðlinum Handbolti Fleiri fréttir Heiðdís leggur skóna á hilluna Víkingur og Þróttur mætast í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins Elísa fer frá Val til Breiðabliks Oliver hættur í fótbolta vegna meiðsla Rugluðust á nafni nýja leikmannsins Sigurður Bjartur á leið til Spánar? Stjarnan selur Adolf Daða til FH Þór/KA fær þrjá leikmenn frá Stólunum á fimm leikmanna degi Fyrirliði FHL er mættur í Laugardalinn Telma eltir þjálfarann í Garðabæinn Hringdu dag og nótt til að klófesta Guðmund: „Konan var að verða geðveik á þeim“ Bryndís Arna er komin heim og samdi við Breiðablik Gummi Tóta orðinn leikmaður ÍA Þróttur skellti KR í Reykjavíkurmótinu KR fær tvo unga Ganverja Breytingar hjá Breiðabliki „Á eftir bolta kemur barn“ Viðar Örn leitaði sér aðstoðar við áfengis- og spilafíkn Trúin eykst á Suðurnesjum með komu McLaughlin Blikar farnir að fylla í skörðin Víkingur og Breiðablik mætast í fyrsta leik Bestu deildarinnar Rafael Máni eltir rætur sínar upp á Skaga Tveir ungir varnarmenn til FH Kristín Dís áfram í herbúðum Blika Miðbær Reykjavíkur er Íslandsmeistari Snýr aftur til Íslands og tekur við ÍBV Róbert með þrennu í sigri KR Fram lagði Leiknismenn Landsliðsbræður Palestínu sameinast í Keflavík Bikarhetjan til KA Sjá meira