Dramatík í Grafarvogi 15. maí 2008 21:06 Fjölnismenn byrja leiktíðina með stæl Mynd/Daniel
Nýliðar Fjölnis hafa heldur betur byrjað vel á sínu fyrsta tímabili í Landsbankadeildinni. Liðið gerði sér lítið fyrir og skellti KR 2-1 í dramatískum leik í Grafarvogi í kvöld. Það var Gunnar Már Guðmundsson sem skoraði sigurmark Fjölnis úr vítaspyrnu þegar rúmar þjrár mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma. Guðjón Baldvinsson kom KR í 1-0 í leiknum á 27. mínútu en aðeins fimm mínútum síðar jafnaði Ásgeir Ásgeirsson fyrir heimamenn Fjölnis. KR pressaði stíft í síðari hálfleik og átti m.a. tvö skot í marksúlurnar, en inn vildi boltinn ekki. Fjölnir fékk svo vítaspyrnu í blálokin og tryggði sér annan sigurinn í röð í deildinni. Keflavík 2 - Fylkir 1 Keflvíkingar réðu ferðinni lengst af gegn Fylki suður með sjó og unnu að lokum 2-1 sigur. Hólmar Örn Rúnarsson skoraði fyrra mark Keflvíkinga beint úr hornspyrnu á 20. mínútu og Guðmundur Steinarsson bætti við öðru marki með þrumuskoti af 25 metra færi í upphafi síðari hálfleiks. Fylkismenn tóku aðeins við sér undir lokin og minnkuðu muninn á 89. mínútu með marki varamannsins Andrésar Jóhannessonar. Fram 2 - HK 0 Framarar byrja vel á Íslandsmótinu þetta árið og unnu í kvöld sannfærandi 2-0 sigur á HK. Safamýrarpiltar skoruðu bæði mörkin með skalla í kvöld. Hið fyrra skoraði Heiðar Geir Júlíusson eftir fyrirgjöf Daða Guðmundssonar á 47. mínútu og Ívar Björnsson innsiglaði sigurinn með öðrum skalla á 62. mínútu eftir hornspyrnu Sam Tillen. HK-menn urðu fyrir nokkru áfalli í upphafi síðari hálfleiks þegar markvörðurinn Gunnleifur Gunnleifsson þurfti að fara meiddur af velli. Breiðablik 0 - Þróttur 0 Breiðablik og Þróttur skildu jöfn á Kópavogsvelli í leik sem var ekki sérlega tilþrifamikill. Það var ekki fyrr en um 20 mínútur voru til leiksloka að heimamenn hleyptu fjöri í leikinn, en aðgangsharður Marel Baldvinsson náði ekki að skora úr nokkrum færum sem hann fékk eftir að hafa komið inn sem varamaður í hálfleik. Fylgst var með gangi mála á Boltavaktinni. Leik FH og ÍA er ólokið, en hann hófst klukkan 20.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Hættur aðeins þrítugur Golf Sjáðu geggjaðan snúning Alberts áður en hann skoraði frábært mark Fótbolti Bunting dró orð sín til baka með tárin í augunum: „Ég er ekki meistari fólksins“ Sport Sakaður um svindl á HM í pílukasti Sport Táningur fær mikið hrós fyrir viðbrögð sín þegar mótherji missti meðvitund Fótbolti Afkáralegt fagn hjá hetju Sambíu Fótbolti Steraleikarnir segi ungu fólki að það sé aldrei nógu fullkomið Sport Áhorfendur ærðust eftir mögulega mark mótsins í fyrsta leik Fótbolti Klappstýrur Björgvins Karls slógu í gegn Sport Áfallið staðreynd og Isak búinn í aðgerð Enski boltinn Fleiri fréttir Meira en 37 stöðugildi hjá Knattspyrnusambandi Íslands Óskar Hrafn um komu Arnórs Ingva: „Gífurlega dýrmætt fyrir KR“ Arnór Ingvi orðinn leikmaður KR Breiðablik kaupir Jónatan frá Norrköping Elías mættur til meistaranna KR sagt vera að landa Arnóri Ingva Hilmar Árni til starfa hjá KR Segir fjórðung í bók Óla ósannan Víkingur í úrslit Bose-bikarsins eftir sigur „Verið heiður að spila í appelsínugulu með frábærum liðsfélögum“ Þekkir Egilshöllina vel og skoraði gegn fyrrum félögum Strákar Heimis Guðjóns fengu slæman skell í fyrsta leik Axel verður áfram hjá Aftureldingu Kveður pabba sinn í Laugardalnum og fer til FH „Félag sem var í basli með að ná endum saman og greiða laun á réttum tíma“ Skrýtið og taktlaust: „Ég er ekkert sátt með niðurstöðuna“ Fanndís kveður sviðið: „Ég er búin að fella nokkur tár“ Gylfi með tvö og Víkingar byrja á sigri Frá Akureyri til Danmerkur Markadrottningin heldur að landsliðið sé búið spil Strákarnir í 2. flokki Vals þeir einu sem ekki spila fyrir áramót Dæturnar vildu norður: „Mun alltaf gera allt fyrir þær“ Stjarnan sækir markvörð í 3. deildina „Ég var orðinn algjörlega bugaður“ Jónatan áfram á Hlíðarenda: „Var alltaf jákvæður fyrir því að framlengja“ Óli Jó kallar ráðninguna á Jóa Kalla algjört bull „Ég elska þig Ísland, takk fyrir allt!“ Sextán ára með fernu fyrir meistara Víkings Valur dregur sig úr Bose-bikarnum „Sagði bara við hann: Djöfulsins fíflið þitt“ Sjá meira