Íslenski boltinn

Barry snýr aftur til æfinga á morgun

Elvar Geir Magnússon skrifar
Gareth Barry vill ganga til liðs við Liverpool.
Gareth Barry vill ganga til liðs við Liverpool.

Gareth Barry mun snúa aftur til æfinga hjá Aston Villa á morgun samkvæmt upplýsingum frá félaginu. Barry hafði áður fengið þá skipun að mæta ekki aftur til félagsins eftir að hafa gagnrýnt Martin O'Neill í viðtali.

Barry er ósáttur í herbúðum Aston Villa og vill ganga til liðs við Liverpool sem hefur mikinn áhuga á að fá hann í sínar raðir.

Aston Villa mætir Odense frá Danmörku á laugardaginn í Intertoto-keppninni en ólíklegt er að Barry komi við sögu þar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×