Krónan í öndunarvél frá Landspítalanum SB skrifar 4. júní 2008 13:19 Bergur Thorbergs listamaður. Öndunarvélin við hlið hans.
Listamaðurinn Bergur Thorbergs fékk lánaða öndunarvél frá Landspítala Háskólasjúkrahúsi í nýtt verk sem verður afhjúpað í Reykjavík Art Gallerí á Skúlagötunni á föstudaginn. Öndunarvélin blæs lífi í litla svarta líkkistu fulla af íslenskum krónum. Sviðsstjóri hjá Landspítalanum segir öndunarvélina ekki vera í notkun á spítalanum heldur hafi hún verið í geymslu sökum almannahagsmuna. "Þetta er öndunarvél af fullkomnustu gerð. Hefur örugglega kostað margar milljónir," segir Bergur Thorberg sem er þekktur fyrir kaffimyndir sínar sem hann málar á hvolfi. "Ég tengdi vélina við lítinn peningakistil sem er full af íslenskri mynt frá öllum öldum. Síðan hjálpar vélin peningunum til að anda, blæs lofti inn í kistilinn svo peningarnir rísa og hníga." Kistillinn er svartur á litinn. Eins og líkkista. "Ég neita því ekki að verkið er pólitískt," segir Bergur. Ég er að vísa beint til samtímans." Þorgeir Pálsson sviðsstjóri á heilbrigðistæknisviði segir almenna reglu spítalans að lána vélar ekki út. Hins vegar væru geymslurnar fullar af gömlum vélum sem er ekki hent út af almannavarnarhlutverki spítalans. "Ef eitthvað stórt kæmi upp á þá eigum við þessi gömlu tæki til vonar og vara. Við notum tækin hins vegar ekki daglega hér innan hús, þróunin er hröð og við viljum aðeins bjóða upp á fullkomnustu tækni inn á spítalanum." Umræðan um bága fjárhagsstöðu spítalana og fjársvelti af hálfu ríkisins er oft fyrirferðarmikil í samfélaginu. Spurður hvort það hafi táknræna merkingu af hálfu spítalans að lána öndunarvélina í listaverk, þar sem vélin blæs lífi, ekki í fólk, heldur peninga, hlær Þorgeir. "Spítalinn tekur aldrei afstöðu til listaverka," segir Þorgeir, "en ef menn vilja túlka að þarna sé verið að benda á hvernig búið er að ríkisspítölunum er þá ekki bara sjálfsagt að taka undir það?".
Mest lesið Justin Timberlake með Lyme-sjúkdóm Lífið Útskúfaður úr Hollywood vegna kossareglunnar Lífið Mannblendnir refir slá í gegn á Snæfellsnesi Lífið Þrettán bestu lög Ozzy Osbourne Lífið Einar og Milla eignuðust dreng Lífið Dularfullur veðurbreytir Jakobs Frímanns og maðurinn á bak við hann Lífið Nýja Kardashian-gríman breytir Hopkins aftur í Lecter Lífið Uppljóstrar um síðustu skilaboðin sem hann fékk frá Ozzy Lífið Forseti Alþingis snæddi kvöldverð með Michael Douglas Lífið Draumabrúðkaup í sextíu ára gömlum kjól frá ömmu Lífið Fleiri fréttir Nýja Kardashian-gríman breytir Hopkins aftur í Lecter Þrettán bestu lög Ozzy Osbourne Mannblendnir refir slá í gegn á Snæfellsnesi Einar og Milla eignuðust dreng Justin Timberlake með Lyme-sjúkdóm Útskúfaður úr Hollywood vegna kossareglunnar Dularfullur veðurbreytir Jakobs Frímanns og maðurinn á bak við hann Uppljóstrar um síðustu skilaboðin sem hann fékk frá Ozzy Góðhjartaður dýrahirðir og tæknigúrú Draumabrúðkaup í sextíu ára gömlum kjól frá ömmu Tugþúsundir vottuðu Ozzy virðingu Kokkarnir á Strikinu með stjörnur í augunum þegar Bon Jovi mætti Síðasta Þjóðhátíðin í bili hjá FM95BLÖ Spámenn bjóða betur en veðurfræðingar Ætlar í pásu frá giggum Forseti Alþingis snæddi kvöldverð með Michael Douglas Sjóðheitt og splunkunýtt Hollywood par Katrín Edda selur í Hlíðunum Þriggja ára snáði stal senunni í messu í Fljótshlíð Fyrstu tónleikar Purrksins í fjörutíu ár Sweeney sökuð um kynþáttahyggju Sögulegur klæðnaður á dreglinum Myndaveisla frá troðfullri tuttugu ára Bræðslunni Katy Perry og Justin Trudeau á stefnumóti „Þetta var algjört bíómyndamóment“ Samband Gallagher-bræðra sagt á hálum ís Harrý rétti fram eins konar sáttahönd Stjörnulífið: „Who the fuck is Kaleo?“ Ræðir það ekki í fjölskylduboði ef þú hittir frænda þinn á swing-viðburði Gordon Ramsay gerir upp Íslandsævintýri Sjá meira