Alves er leikmaður 33. umferðar 7. apríl 2008 16:20 NordcPhotos/GettyImages
Brasilíski framherjinn Alfonso Alves sló í gegn um helgina þegar hann skoraði bæði mörk Middlesbrough í 2-2 jafntefli liðsins gegn Manchester United. Smelltu hér til að sjá myndband með leikmanni umferðarinnar. Það var reyndar Cristiano Ronaldo sem kom United á bragðið í leiknum, en Alves óx ásmegin eftir því sem leið á leikinn og skoraði tvívegis áður en Wayne Rooney bjargaði stigi fyrir meistaraefnin í United. Alves átti líka skot í stöng og slá í leiknum. Alves var keyptur til Boro fyrir 12,5 milljónir punda í sumar en gekk erfiðlega að fóta sig á Englandi í byrjun. Það var því sannarlega kominn tími á að fyrrum Heerenveen-leikmaðurinn kæmist á blað hjá Boro, en hann hafði ekki skorað fyrir leikinn gegn United. Miklar vonir voru bundnar við Alves þegar hann kom til Middlesbrough því þessi 27 ára gamli markaskorari var með frábært markahlutfall þegar hann lék með hollenska liðinu og náði m.a. að skora sjö mörk í einum og sama leiknum. "Ég er mjög ánægður að hafa loksins náð að skora, en ég vissi að mörkin kæmu ef mér yrði sýnd þolinmæði og ég fengi tíma til að aðlagast. Það var gaman að skora á móti Manchester United en ég hefði frekar viljað að við hefðum unnið leikinn," sagði Alves eftir leikinn. Hann segist hafa verið lengi að aðlagast hraðanum í enska boltanum. "Hollenski og brasilíski boltinn er ekki nærri eins hraður og harður og sá enski, en ég er að venjast honum og vona að ég eigi eftir að ná árangri hérna," sagði Alves. Nafn: Alfonso Alves Martins Júnior Fæddur: 30. janúar 1981 í Belo Horizonte í Brasilíu Félög: Atletico-MG (Bra), Örgryte, Malmö FF, Heerenveen, Middlesbrough. Númer: 12
Enski boltinn Mest lesið HM-leikmaður í glannaakstri með kókaín í blóðinu Fótbolti Litli bróðir þekktustu týndu stelpu heims stefnir á Ólympíuleika Sport Klopp kynntur sem nýr landsliðsþjálfari Þýskalands Fótbolti Myndband með afa heimsmeistarans bræddi hjörtu Fótbolti Fimmtán ára strákur í hópi Manchester United í kvöld Enski boltinn Hættir með landsliðinu Fótbolti Lebron fer til Fíladelfíu Körfubolti 42 ára aldursmunur á keppendum í 1500 metra hlaupi kvenna Sport María lýsir erfiðri meðgöngu: „Þekki mig ekki í eigin líkama“ Fótbolti Völler fer og Arsenal-hetja starfar með Klopp Fótbolti Fleiri fréttir Garnacho vonast til að endurheimta sjálfstraust sitt hjá Villa Entist skammt í þjálfarastólnum Fimmtán ára strákur í hópi Manchester United í kvöld Chelsea að hreppa Lacroix Skaut á United í fyrsta viðtalinu sem leikmaður City: „Kóngarnir í Manchester“ Haaland dýrastur í sögu Fantasy Ætla að bjóða sjötíu milljónir punda í fyrirliða Newcastle Sveigja fram hjá reglum og fá Garnacho fyrst að láni Eftirmaður Trossard er Grikki en kemur frá Belgíu Arsenal án lykilmanns í marga mánuði Mateus Fernandes með stórbrotið mark í fyrsta leik með Tottenham „Okkur vantar klárlega kantmann“ Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Sjá meira