Fjölnir vann í Keflavík Elvar Geir Magnússon skrifar 23. júní 2008 19:15
Fjórir leikir voru í Landsbankadeild karla í kvöld. Athyglisverðustu úrslitin urðu í Keflavík þar sem heimamenn biðu lægri hlut. Nýliðar Fjölnis gerðu sér lítið fyrir og urðu fyrsta liðið til að sækja sigur til Keflavíkur. Þeir unnu 2-1 útisigur á toppliðinu. Guðmundur Steinarsson kom Keflavík yfir eftir hálftíma en Gunnar Már Guðmundsson jafnaði rétt fyrir hlé úr vítaspyrnu sem hann fiskaði sjálfur. Fjölnismenn, vel studdir af stuðningsmannahópnum Kára, náðu að tryggja sér sigurinn þegar Ólafur Páll Snorrason skoraði á 53. mínútu. Gott skot utan teigs sem söng í netinu en Ólafur hafði unnið boltann sjálfur. ÍA og Þróttur gerðu 1-1 jafntefli á Skaganum. Heimamenn voru talsvert meira með boltann en gekk illa að finna leiðina í markið. Það tókst á 72. mínútu þegar Guðjón Heiðar Sveinsson skoraði. Hjörtur Hjartarson jafnaði hinsvegar með laglegu marki eftir sendingu Rafns Andra Haraldssonar. KR-ingar áttu ekki í vandræðum með botnlið HK og unnu 3-0 útisigur á Kópavogsvelli. Guðjón Baldvinsson skoraði tvö fyrstu mörkin snemma leiks og það var svo hinn sjóðheiti Björgólfur Takefusa sem innsiglaði sigurinn undir lokin. Fram vann 2-1 sigur á Breiðabliki á Laugardalsvellinum. Heiðar Geir Júlíusson og Ívar Björnsson komu Fram í tveggja marka forystu með skallamörkum eftir sendingar frá Paul McShane. Guðmundur Kristjánsson minnkaði muninn rétt fyrir hálfleik. Prince Rajcomar fékk að líta beint rautt spjald hjá dómara leiksins eftir að hafa gefið Auðuni Helgasyni olnbogaskot á 74. mínútu og Blikar luku leik tíu. Fylgst var með leikjum kvöldsins á Boltavaktinni. Slóð Boltavaktarinnar er visir.is/boltavakt 19:15 ÍA - Þróttur 1-1 19:15 HK - KR 0-3 19:15 Keflavík - Fjölnir 1-2 20:00 Fram - Breiðablik 2-1
Mest lesið Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn Tré felld vegna Þjóðarhallar Sport Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Íslenski boltinn „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Enski boltinn Fleiri fréttir „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Gylfi valinn besti leikmaður ársins „Óvíst hvar Stefan Ljubicic mun spila“ Sjá meira