Erum ekki bara Scott Ramsey Elvar Geir Magnússon skrifar 26. maí 2008 22:11 Orri Hjaltalín, fyrirliði Blika.
Það var boðið upp á stórskemmtilegan leik á Kópavogsvelli í kvöld þar sem Grindavík vann 6-3 sigur á Breiðabliki. Milan Stefán Jankovic, þjálfari Grindavíkur, var skælbrosandi í leikslok enda fyrstu stig liðsins komin í hús. „Þetta er gaman fyrir okkar stuðningsmenn og bara alla fótboltaáhugamenn. Leikurinn var ótrúlega mikil skemmtun. Svona eiga leikir að vera, sóknarleikur frá upphafi til enda," sagði Milan Stefán „Hjá báðum liðum voru nokkrir mjög ungir og sprækir leikmenn að spila og það er bara jákvætt." Grindavíkurliðið gerði út um leikinn í fyrri hálfleik en staðan í hálfleik var 1-5. Varnarmenn Blika réðu ekkert við sókn Grindvíkinga. Scott Ramsey átti enn einn stórleikinn. „Ramsey hefur verið alveg frábær en í þessum leik sást alveg að við erum ekki bara Scott Ramsey. Við erum með fleiri sem eru góðir fótboltamenn og hann myndi ekki blómstra svona nema hafa fleiri góða leikmenn í kringum sig. Hann er samt klárlega einn besti leikmaður landsins í dag, ekki spurning," sagði Milan Stefán. „Þetta var rosalega mikilvægur sigur. Það var engin pressa á okkur fyrir leikinn og það hjálpaði. Við ætlum bara að halda áfram að spila okkar leik, við vissum að þetta myndi detta með okkur," sagði Milan Stefán en þrátt fyrir að hafa verið stigalausir fyrir leikinn hafa Grindvíkingar verið að leika nokkuð vel á köflum í byrjun móts.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Er nýi Haaland íslenskur? Fótbolti Veggmynd hetju Spánverja á HM eyðilögð strax Fótbolti The Times: Norska sambandið mun kvarta undan Trump Fótbolti „Auðveldara að reka einn þjálfara en 23 leikmenn“ Íslenski boltinn Bergrós meðal fimmtán efstu eftir fyrsta daginn Sport Verið að rannsaka Inter Miami eftir kaupin á Casemiro Fótbolti Messi er mesti yfirburðamaður eins liðs í HM-sögunni Fótbolti Fengu þyngd sína í tómötum fyrir að verða heimsmeistarar Fótbolti Kærustuparið gerði það sem engum hafði tekist í sögu heimsleikanna Sport Mateus Fernandes með stórbrotið mark í fyrsta leik með Tottenham Enski boltinn Fleiri fréttir Spilaði á móti Þór um síðustu helgi og var síðan lánaður til Þórs Spilar gegnum meiðsli: „Verður örugglega svolítið vont“ Gegndrepa Jón Þór bíður sólarinnar „Auðveldara að reka einn þjálfara en 23 leikmenn“ „Kannski ekki besta umhverfið eins og staðan var“ Eyjakonur þétta vörnina Vandræðalega slakar Valskonur: „Til skammar“ Fór á kostum í vítakeppninni og ekki síður í fögnuðinum Uppgjörið: Valur – Breiðablik 1-7 | Hrafnhildur Ása og Agla María tættu vörn Vals í sig Uppgjörið: Fylkir – Afturelding 3-4 (1-1) | Afturelding í úrslit bikarkeppninnar í fyrsta sinn Uppgjörið: FH – Stjarnan 7-3 | FH heldur toppsætinu Sögulegur leikur fyrir Mosfellinga Pressuóðir Ísraelar í Víkinni Sjáðu draumainnkomu Söntu í íslenska boltann „Þetta lítur bara illa út“ Bossabissnessinn blómstrar samhliða boltanum Bjarni Guðjóns viðurkenndi að dæma átti víti á son hans Sjáðu langskotaveislu Keflvíkinga í stórsigri á Skagamönnum Uppgjörið: FH – Breiðablik 0-0 | Markalaust þrátt fyrir fjölda færa og umdeilanleg atvik Uppgjör: Keflavík – ÍA | Slátrun á Suðurnesjunum Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - Þróttur 4-2 | Ótrúleg endurkoma og nýliðaþrenna Sjáðu Fram og Þór/KA hrista vel upp í fallbaráttunni í Bestu kvenna Beið spenntur eftir því að Amin færi út Sjáðu Stjörnusnakksmáltíð KR-inga og markajafntefli í Eyjum „Vorum bara litlar í okkur og vorum bara hérna að grenja“ „Frábært að vera komnar á sigurbraut aftur“ Sjáðu mörkin þegar Þór vann meistarana og Fram sótti sigur á Hlíðarenda „Fannst mikilvægt að byrja þetta með krafti“ „Satt best að segja er mér drullusama“ Uppgjörið: Þór/KA - ÍBV 2-1 | Þriðji sigurinn í síðustu fjórum leikjum Sjá meira