Innlent

Samið um 20 þúsund króna hækkun frá 1. maí

Ögmundur Jónasson, formaður BSRB.
Ögmundur Jónasson, formaður BSRB.
Gengið var frá samningi aðildarfélaga BSRB sem áttu lausa samninga við ríkið 1. maí síðastliðinn við samninganefnd ríkisins um miðnættið. Samið var til skamms tíma eða til loka mars á næsta ári. Samið var um 20.300 króna hækkun frá 1. maí. Einnig var samið um að greiðsla ríkisins í styrkarsjóði BSRB hækki um 0,2%. Hún fer úr 0,55% í 0,75% um næstu áramót, eftir því sem fram kemur á vef BSRB.

Ögmundur Jónasson formaður BSRB segist ánægður með að samningar hafi náðst. "Við lögðum upp með að samið yrði til skamms tíma og það gekk eftir. Væntingar höfðu kviknað um sérstakt framlag til umönnunarstétta í samræmi við kröfur BSRB en það var blásið af sem er miður. Á heildina litið tel ég mjög hyggilegt að semja á þeim nótum sem var gert," segir Ögmundur.

Strax verður farið í að kynna samningana og stefnt er að því að atkvæðagreiðslu um þá ljúki fyrir 20. júní.

Meðal annarra atriða sem samið var um er að desemberuppbótin hækki úr 41.800 í 44.100 krónur. Tryggt er framlag til endurmenntunarsjóða BSRB og framlag til að efla trúnaðarmannakerfið. Þá var ákveðið að efna til umræðu um að stuðla að endurhæfinu fyrir þá sem misst hafa starfsorku og kanna hvort farið verði út á svipaða braut og samið var um á almennum markaði en ekkert endanlegt hefur verið ákveðið í þeim efnum annað en að BSRB verði tryggt sambærilegt framlag til endurhæfingar og samið var um á almennum markaði.

 

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×