Lífið

Umboðsmaður Íslands tekur að sér alþingismann

Er vanur að sjá um stjörnurnar en leggst nú á árarnar með Kjartani Ólafssyni, 4. þingmanni Suðurkjördæmis. Fréttablaðið/Teitur
Er vanur að sjá um stjörnurnar en leggst nú á árarnar með Kjartani Ólafssyni, 4. þingmanni Suðurkjördæmis. Fréttablaðið/Teitur

„Þegar kallað er eftir aðstoð úr þessari átt, á tímum sem þessum, getur maður ekki skorast undan. Ég sá þetta sem leið til að geta orðið að einhverju gagni," segir Einar Bárðarson sem oft hefur verið kallaður umboðsmaður Íslands.

Einar hefur nú verið ráðinn til að verða aðstoðarmaður Kjartans Ólafssonar, 4. þingmanns Suðurkjördæmis, og situr hann á þingi fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Kjartan er 3. varaforseti Alþingis og hefur verið frá 2007. Nú, þegar allt leikur á reiðiskjálfi í samfélaginu og stjórnmálamenn sitja undir ámæli um að ráða ekki neitt við neitt, hlýtur það að teljast afar sterkur leikur hjá Kjartani að ráða Einar til sín. Einar Bárðarson hefur um langt skeið verið einhver allra farsælasti umboðs- og athafnamaður Íslands.

Meðal skjólstæðinga hans eru, og hafa verið, stórstjörnur á borð við Garðar Thor Cortes, Nylon-flokkurinn og hljómsveitin Skítamórall. En það er ekki eins og Einar líti svo á að hann sé til þess ráðinn að passa upp á Kjartan heldur miklu frekar vera honum innan handar með ýmis mál og tiltekin. Suðurkjördæmi nær frá Garði austur að Höfn í Hornafirði, gríðarlega víðfeðmt kjördæmi og í mörg horn að líta.

„Kjartan er duglegur, fylginn sér og heiðarlegur," segir Einar. Aðspurður hvernig þetta hafi komið til þá voru þeir staddir saman við athöfn í haust þegar Reykjanesbrautin var tvöfölduð. En Einar hefur nú verið búsettur um hríð í Reykjanesbæ. Þá færði Kjartan þetta í tal við Einar, sagðist vera að leita eftir góðum aðstoðarmanni og hvort Einar væri til í það.

„Kjartan er frændi minn og mér að góðu kunnur frá því að ég ólst upp á Selfossi."

Einar segir að breyttar aðstæður, frá því að hann var á ferð og flugi um heim allan og til þess að vera nú alfluttur heim, hafi kallað á meiri áhuga hans á því sem er að gerast innanlands og í samfélaginu. Hann slær á létta strengi aðspurður um pólitísk afskipti sín. „Já já, ég náttúrlega hef tuðað við sjónvarpið eins og aðrir landsmenn. En, jú, svo var ég varaformaður ungra sjálfstæðismanna í Árnessýslu um tíma. Seint á síðustu öld. En flakk mitt um heiminn hefur öðru fremur orsakað að ég hef ekki fest mig í neinum embættum eða verkefnum sem tengjast stjórnmálum áður."

Einar hefur að undanförnu unnið í hlutastarfi við verkefnastjórn, verkefni sem Einar segir ákaflega spennandi og heitir Víkingaheimar, sem opna á í Reykjanesbæ í maí. Einar mun eftir sem áður fylgja því verkefni eftir og úr hlaði.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.