Aung San fær næringu í æð Óli Tynes skrifar 18. september 2008 13:00 Aung San Su Ky.
Búrmiska andófskonan Aung San Su Ky er orðin mjög veikburða og fær næringu í æð. Aung San sem er nú 63 ára gömul hefur setið í stofufangelsi herforingjastjórnarinnar meira og minna í 19 ár. Um miðjan síðasta mánuð hóf hún mótmælaaðgerð og neitaði að taka við hinum daglega matarpakka sem herforingjastjórnin skammtar henni. Hún hefur síðan lítið nærst. Um síðustu helgi var lækni hennar nóg boðið. Hún var orðin svo veikburða að hann gefur henni næringu í æð og hefur fengið hana til þess að taka við matarpökkunum á nýjan leik. Aung San er leiðtogi stjórnarandstöðunnar í Burma. Árið 1990 vann flokkur hennar yfirburðarsigur í fyrstu lýðræðislegu kosningum landsins. Herforingjastjórnin sem hefur stjórnað Burma síðan 1962 neitaði hinsvegar að fara frá völdum og hneppti hana í stofufangelsi. Hún komst ekki til Noregs til þess að taka á móti friðarverðlaunum Nóbels sem henni voru veitt árið 1991. Hún gat heldur ekki verið viðstödd eiginmanns síns sem lést í Bretlandi árið 1999 og hefur ekki fengið að tala við syni sína tvo síðan 2003.
Erlent Mest lesið Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Innlent Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ Innlent Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Innlent Blóðbað á lestarpalli Erlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Innlent Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Innlent Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Rukka erlenda nemendur um milljónir Innlent Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Innlent Fleiri fréttir Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Sjá meira