Konan fékk leiða á að hafa mig heima 3. september 2008 10:02 Kári Steinn Reynisson
Skagamenn eygja veika von um að forðast fall úr Landsbankadeildinni. Þeir unnu aðeins sinn annan leik í sumar gegn Val á dögunum. Þar fór á kostum gamla brýnið Kári Steinn Reynisson sem hefur tekið skóna niður úr hillunni líkt og Pálmi Haraldsson. „Það kom mér á óvart hvað það var létt yfir mannskapnum þó svo að ástandið væri eins og það er. Það kveikti í mér að gera þetta af einhverri alvöru. Ég ætlaði ekkert að spila strax, var meira að hugsa um að mæta á æfingar og reyna að létta undir móralinn. Svo eru hinir svo lélegir að ég komst beint í liðið," sagði hinn 34 ára gamli Kári Steinn léttur. Það var ekki að beiðni bræðranna, Arnars og Bjarka, sem Kári Steinn ákvað að mæta aftur á æfingar og hjálpa félaginu sínu. „Ég hafði aðeins verið að spá í þetta og ákvað svo að kíkja því konan var komin með leiða á að hafa mig heima. Ég var farinn að skipta mér af hlutum sem ég á ekkert að skipta mér af," sagði Kári Steinn á gamansömum nótum. „Ég var nú ekki búinn að sakna fótboltans mikið og var mjög sáttur í vor með að hafa allan þennan frítíma. Svo þegar grasið fór að grænka meira fékk maður aðeins fiðring. Svo var í raun ekkert tilefni til að koma aftur og Gaui [Guðjón Þórðarson] var allt of stoltur til þess að tékka á manni enda hafði ég sagt honum að ég væri hættur." Kári Steinn starfar á daginn í Landsbankanum og Pálmi hjá Glitni. Það liggur því beinast við að spyrja hvort það sé svona leiðinlegt að telja peninga að menn þurfi að byrja aftur í boltanum? „Nei, það er nú ekki alveg svo," sagði Kári og hló. „Við Pálmi höfðum verið að halda okkur í formi með gömlum jöxlum í fótbolta tvisvar í viku. Það er annars mjög gaman að vera byrjaður aftur og ég nýt þess að spila. Það er ekkert stress á okkur þrátt fyrir vonda stöðu og mórallinn góður," sagði Kári Steinn en er hann kominn til að vera? „Ég veit það ekki og er lítið að spá í það. Ætla að klára þetta sumar og sjá svo til. Ég ákvað síðast að taka mér frí fram að áramótum og naut þess mjög vel. Ég ákvað því að láta gott heita þá."
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Flugóður forseti FIFA Fótbolti Þvottabjörn Haalands uppseldur og sá sem bjó hann til kominn á eftirlaun Fótbolti Ástæðan fyrir því að Bellingham sló til Barco eftir leik Fótbolti Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Handbolti Gráti nær þegar hann frétti að hann myndi dæma úrslitaleikinn Fótbolti Heimsmeistarar fá hring Fótbolti Siggi Raggi græddi á lygilegri atburðarás Fótbolti „Fjögur ár eru langur tími“ Fótbolti „Ég er fyrst og fremst vonsvikinn með sjálfan mig“ Fótbolti Var rifrildið við Bellingham það sem kveikti í Messi? Fótbolti Fleiri fréttir Yngri bróðir með frábæra ferilskrá tekur slaginn með KA Sjáðu tvíburana í FH búa til mark í fyrstu tilraun Ari Leifsson í Stjörnuna Fáum svo mörg færi að það er erfitt að skora ekki Haukakonur fengu stóran skell í síðasta leik fyrir endurkomu Söru Afturelding með fjögurra stiga forskot á toppnum Uppgjörið: Gri/Nja - FH 1-6 | Flugeldasýning sendi FH á toppinn Bubbi fékk áritaða KR-treyju í afmælisgjöf Jóhannes Kristinn í FH en „klárlega hluti af framtíðinni í Víkinni“ Adam Ægir mættur til KA Sjáðu Blika fara á toppinn og glæsimark í Eyjum Búið að opna gluggann: Hvað er búið að gerast og hvað þarf að gerast? Uppgjörið: ÍBV - Valur 2-1 | Ferskir Frakkar, eitraðar Eyjakonur og veiklulegur Valur Uppgjörið: Breiðablik - Víkingur 4-1 | Skoruðu þrjú á sjö mínútna kafla Skoða markaðinn til að þurfa ekki að gefa fleiri leiki „Hann var farinn að spyrja hvenær við ætluðum að flytja til Íslands“ Sjáðu Stjörnuna stimpla sig í titilslag og Hamlett koma Fram af botninum Bónorð strax eftir leik í Garðabæ „Ekkert af þessu gekk og þá líður manni ömurlega“ Uppgjörið: Þróttur-Fram 0-1 | Unnu aftur og komust af botninum Uppgjörið: Stjarnan-Þór/KA 3-2 | Stjörnukonur aftur á sigurbraut Fimm HK-ingar á skotskónum í stórsigri KSÍ ætlar ekki að láta gervigreindina koma í stað starfsfólks Sjáðu dramatíkina í endurkomusigri Blika „Þetta er svo hörmulegur dómur, án gríns“ „Skil ekki hvernig menn geta flaggað á eða séð eitthvað sem gerist ekki“ Fylkismenn keyrðu yfir Vestra í upphafi leiks Frábært að koma úr meiðslum og skora sitt fyrsta mark Valur bætir við sig fyrrum markadrottningu úr Lengjudeildinni Uppgjörið: Breiðablik-Keflavík 2-1 | Kristinn tryggði Blikum sigurinn Sjá meira