Íslenski boltinn

Hafþór og Albert Brynjar í hópinn

Elvar Geir Magnússon skrifar
Hafþór Ægir Vilhjálmsson.
Hafþór Ægir Vilhjálmsson.

Luka Kostic, U21 landsliðsþjálfari, hefur gert tvær breytingar á hóp sínum er mætir Norðmönnum í vináttulandsleik á fimmtudag kl. 19:15. Leikurinn fer fram á hinum nýja Vodafonevelli.

Albert Brynjar Ingason og Hafþór Ægir Vilhjálmsson, báðir úr Val koma inn í hópinn í stað Hjálmars Þórarinssonar úr Fram og Guðmundar Reynis Gunnarssonar úr KR.

Hjálmar getur ekki gefið kost á sér vegna anna í prófum og Guðmundur Reynir er meiddur




Fleiri fréttir

Sjá meira


×