Markmannsþjálfari Hauka leikur gegn þeim í bikarnum Elvar Geir Magnússon skrifar 23. júní 2008 12:39 Gunnleifur, fyrirliði HK og markmannsþjálfari Hauka.
HK-ingar munu mæta Haukum á gervigrasvellinum á Ásvöllum í sextán liða úrslitum VISA-bikarsins en dregið var í hádeginu í dag. Gunnleifur Gunnleifsson, markvörður og fyrirliði HK, er markmannsþjálfari Hauka. Gunnleifur var meðal annars í liðsstjórn Hauka gegn ÍBV í 1. deildinni í gær og fagnaði sigri Hauka vel. Gunnleifur var léttur í bragði þegar Vísir ræddi við hann eftir dráttinn. „Þetta er allavega ekki óskadrátturinn," sagði Gunnleifur. „Ég er markmannsþjálfari Hauka og hef verið á flestum leikjum og æfingum hjá þeim. Það var bara hálf vandræðalegt þegar þetta kom upp, ég var að tala um það um daginn að eiginlega allt nema þetta mætti koma upp." „Ég mun samt klárlega rukka Hauka um tvo vinnutíma meðan leikurinn er í gangi. Ég verð líka að fylgjast með markverðinum þeirra," sagði Gunnleifur sem neitar því ekki að það verði sérstök tilfinning að leika gegn Haukum. „Þetta er samt bara fótboltaleikur og við ætlum okkur bara sigur. Þetta verður fínt þegar maður er kominn út á völlinn." HK mætir KR í kvöld á Kópavogsvelli í Landsbankadeildinni. „KR-ingar eru á fljúgandi siglingu og náðu að slátra KB 1-0 bikarnum. Nei en án alls gríns þá mæta þeir pottþétt öflugir til leiks og við verðum að mæta þeim." „Við erum í neðsta sæti og það er ekki hægt að horfa framhjá því. Við verðum að fara að krækja í stig ef ekki á illa að fara. Við erum vel undirbúnir og leggjum ekkert árar í bát," sagði Gunnleifur að lokum.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Tré felld vegna Þjóðarhallar Sport Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Íslenski boltinn „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Enski boltinn Fleiri fréttir Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Gylfi valinn besti leikmaður ársins „Óvíst hvar Stefan Ljubicic mun spila“ „Engin krafa frá stjórn um að ná sæti í Evrópukeppni“ Sjá meira