Páll Axel í Grindavík Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 15. maí 2008 16:14 Páll Axel á fleygiferð með íslenska landsliðinu í körfubolta.
Það skal tekið fram strax í upphafi að þessi frétt fjallar um knattspyrnu - en ekki körfubolta. Páll Axel Vilbergsson, landsliðsmaður í körfubolta, hefur formlega gengið til liðs við knattspyrnulið Grindavíkur en hann hefur leikið með körfuboltaliði félagsins um árabil. Páll Axel var áður skráður í GG sem hefur nú lagt upp laupana og sagði hann í samtali við Vísi að hann hafi gert þetta aðallega formsins vegna. „Ég vildi bara vera í mínu félagi ef ég skyldi nú spila með old boys-liðinu í sumar. Ég er ekki að fara að mæta á æfingar hjá meistaraflokki enda hef ég hvorki áhuga né getu til þess," sagði hann í léttum dúr. Hann neitar þó ekki að hann muni svara kallinu ef það kemur. „Já, ég er alltaf klár og myndi aldrei skorast undan nýrri áskorun," sagði hann en hvaða stöðu myndi hann spila á vellinum? „Ég myndi ekki koma nálægt vörninni og tel að ég myndi nýtast mun betur í sókninni. Ég held að miðað við leikinn gær að þá hefði þeim ekki veitt af háum „target senter" til að taka við boltanum og halda honum," sagði hann en Valur vann í gær 3-0 sigur á Grindavík. „Þeim virtist reyndar ekki veita af hjálpinni," sagði hann í hæðnistón. „Ég reyndar stórefast um að kallið komi en það er þó aldrei að vita. Möguleikinn er alla vega fyrir hendi."
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Skandall á EM í handbolta: „Hefði aldrei átt að gerast“ Handbolti Algjör upplausn í úrslitaleik Afríkukeppninnar: „Farsakennt“ Fótbolti Fá meira fyrir níu pílna legg heldur en að vinna mótið Sport Gefur Snorra toppeinkunn: „Gríðarleg pressa á honum“ Handbolti Miðar á milliriðil Íslands rjúka út: „Mikilvægt að tryggja sér miða strax“ Handbolti Sigur Ungverja stillir upp úrslitaleik við Ísland um toppsætið Handbolti Eiga vart orð yfir mögnuðum árangri Færeyja: „Algjörlega einstakt“ Handbolti „Hef verið í handbolta í þúsund ár en hef aldrei séð neitt þessu líkt“ Handbolti Dagskráin í dag: Enski boltinn og stjörnurnar í pílukasti Sport EM í dag: Stóra Hauks Þrastar leiknum fagnað með pylsuveislu Handbolti Fleiri fréttir Gummi Tóta orðinn leikmaður ÍA Þróttur skellti KR í Reykjavíkurmótinu KR fær tvo unga Ganverja Breytingar hjá Breiðabliki „Á eftir bolta kemur barn“ Viðar Örn leitaði sér aðstoðar við áfengis- og spilafíkn Trúin eykst á Suðurnesjum með komu McLaughlin Blikar farnir að fylla í skörðin Víkingur og Breiðablik mætast í fyrsta leik Bestu deildarinnar Rafael Máni eltir rætur sínar upp á Skaga Tveir ungir varnarmenn til FH Kristín Dís áfram í herbúðum Blika Miðbær Reykjavíkur er Íslandsmeistari Snýr aftur til Íslands og tekur við ÍBV Róbert með þrennu í sigri KR Fram lagði Leiknismenn Landsliðsbræður Palestínu sameinast í Keflavík Bikarhetjan til KA Þrótti berst mikill liðsstyrkur úr Keflavík Jón Guðni aðstoðar Ólaf Inga Blikarnir eru búnir að missa 34 mörk og 25 stoðsendingar Birta eltir ástina og semur við Genoa Júlíus Mar seldur til Kristiansund Bæði Blikaliðin fá sánuklefa fyrir komandi tímabil Feginn að vera fluttur heim úr fátækrahverfinu í Kína Svekktur að fá ekki leyfi til að taka við ÍBV Alfreð hættur hjá Breiðabliki Skipulagsbreytingar á skrifstofu KSÍ Nýliðarnir fá bandarískan markvörð Júlíus sagður á förum frá KR til Noregs Sjá meira