Viðskipti innlent

Actavis mögulega til sölu fyrir 900 milljarða

Björgólfur Thor Björgólfsson.
Björgólfur Thor Björgólfsson.

Bandaríska stórblaðið The Wall Street Journal greinir frá því í dag að lyfjafyrirtækið Actavis, sem er í eigu Björgólfs Thors Björgólfssonar, sé mögulega til sölu. Blaðið segir virði félagsins vera um 6 milljarðar evra, eða rúmir 900 milljarðar króna.

Ásgeir Friðgeirsson, talsmaður Björgólfs, staðfestir við blaðið að Novator, fyrirtæki Björgólfs sem á 80 prósent í Actavis, hafi leitað til fjárfestingabankans Merrill Lynch fyrir nokkrum mánuðum síðan til þess að fá ráðgjöf með yfirtöku, samruna eða sölu fyrirtækisins í huga. Þá komi einnig til greina að skrá félagið í kauphöll.

Blaðið hefur eftir heimildarmanni sínum að innan Actavis sé lögð áhersla á að selja fyrirtækið og að þau vandræði sem Björgólfur Thor hafi lent í með Landsbankann muni gera það að verkum að hann sé viljugri til þess að selja lyfjafyrirtækið.

Ásgeir neitar því hinsvegar að hluthafarnir í Actavis væru að reyna að selja fyrirtækið í flýti og hann segir að fjármálakrísan á Íslandi hafi engin áhrif á málið. Hann sagði einnig að ekkert yrði úr mögulegum samningum fyrr en á næsta ári, og að Björgólfur vildi ekki tjá sig um málið.

Ásgeir vildi heldur ekki tjá sig um virði Actavis eða afkomu félagsins. En heimildarmaður blaðsins segir að eigendur fyrirtækisins vonist til að hagnaður fyrir skatta á næsta ári nemi um 500 milljónum evra, sem þýðir að söluverðmæti fyrirtækisins gæti verið 6 milljarðar evra eða meira, ef miðað er við þá stuðla um verðmat sem notaðir hafa verið við sölur á sambærilegum samheitalyfjafyrirtækjum undanfarið.
















Fleiri fréttir

Sjá meira


×