Innlent

Skjalasafn Bjarna Benediktssonar afhent Borgarskjalasafni

Bjarni Benediktsson.
Bjarni Benediktsson.

Einkaskjalasafn Bjarna Benediktssonar, fyrrverandi borgarstjóra og forsætisráðherra, var formlega afhent Borgarskjalasafni Reykjavíkur til varðveislu og eignar í Höfða í dag, en hann hefði orðið 100 ára í dag.

Borgarstjórinn í Reykjavík, Ólafur F. Magnússon og Björn Bjarnason fyrir hönd lögerfingja Bjarna undirrituðu samning um afhendinguna en í honum kemur fram hvaða skjöl eru afhent og hvaða aðgangsskilyrði eru að þeim.

Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg segir að um sé að ræða einstaklega yfirgripsmikið og umfangsmikið skjalasafn sem spannar allt frá æskudögum hans til dauðadags. „Bjarni Benediktsson fæddist árið 1908 og lést árið 1970 á hátindi ferils síns. Bréfa- og málasafn hans spannar allan pólitískan feril hans, þar með talið frá tíma hans sem borgarfulltrúi, borgarstjóri, formaður Sjálfstæðisflokksins, þingmaður, dóms- og kirkjumálaráðherra, menntamálaráðherra, utanríkisráðherra og forsætisráðherra," segir í tilkynningunni.

„Sömuleiðis eru í safninu skjöl frá störfum hans sem ritstjóri Morgunblaðsins, lagaprófessor og lögmaður. Um er að ræða móttekin bréf, afrit útsendra bréfa, greinargerðir, skýrslur, minnisblöð og fleira. Meðal annars er til umfjöllunar stjórnarskrármálið, utanríkismál, efnahagsmál og fleira. Í safninu er mikið magn af ræðum og greinum og sömuleiðis drög að ræðum sem sýna hvernig þær hafa mótast. Þá er í safninu fjöldi ljósmynda, einkum af opinberum viðburðum en eitthvað af fjölskyldumyndum."

Þá segir að unnið sé að skráningu skjalasafnsins og mun það verða opnað til rannsókna eigi síðar en 1. febrúar 2009.

Sérstök vefsíða tileinkuð Bjarna var opnuð í tilefni dagsins.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×