Grindavík með félagaskiptamál til FIFA Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 14. maí 2008 10:48 Milan Stefán Jankovic, þjálfari Grindavíkur. Mynd/Vilhelm
Landsbankadeildarlið Grindavíkur hefur skotið félagaskiptamáli til Alþjóða knattspyrnusambandsins vegna sóknarmannsins Gilles Mbang Ondo frá Gabon. Ondo kom til landsins fyrir tíu dögum síðan og hefur æft með Grindvíkingum síðan þá. Þeir vilja semja við hann en hafa ekki fengið félagaskiptabeiðni sína samþykkta hjá gamla félaginu hans. Ondo lék síðast með SC Eisenstadt í Austurríki sem var tekið til gjaldþrotaskipta í byrjun mánaðarins. Ingvar Guðjónsson, framkvæmdarstjóri knattspyrnudeildar Grindavíkur, sagði í samtali við Vísi að skiptastjóri þrotabúsins neitaði að samþykkja félagaskiptin. „Austurríska knattspyrnusambandið hefur dregið lappirnar í þessu máli og er málið núna komið á borð FIFA. Það er okkar von að þeir taki á þessu máli bæði varðandi rétt leikmannsins og rétt okkar." Það gæti flækt málin að félagaskiptaglugginn hér á landi lokar á miðnætti annað kvöld en Ingvar vonast til þess að það hafi ekki áhrif á málið. „Félagaskiptabeiðnin fór frá okkur fyrir tólf dögum síðan og ef FIFA dæmir okkur í hag get ég ekki ímyndað mér annað en að hann fái leikheimild með okkur. En þetta er sérstakt mál og gæti gefið fordæmi." Ondo er 23 ára gamall og lék áður með Auxerre í Frakklandi. Hann á að baki tvo A-landsleiki með Gabon og hefur skorað í þeim eitt mark. Hann er einnig með franskan ríkisborgararétt. SC Eisenstadt var stofnað árið 1907 og lék síðast í þriðju efstu deild í Austurríki. Félagið náði sínum besta árangri árið 1985 er það hafnaði í áttunda sæti í efstu deild þar í landi.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Körfubolti „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Íslenski boltinn Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Fleiri fréttir Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Sjá meira