Umfjöllun: Valsmenn skoruðu fimm mörk 13. apríl 2008 12:04 Atli Sveinn Þórarinsson, fyrirliði Vals, tekur við Atlantic-bikarnum eftir sigur Vals í gær. Fréttablaðið/Arnþór
Íslandsmeistarar Vals unnu 5-2 sigur á Færeyjameisturum NSÍ í Atlantic-bikarnum í Kórnum í gær. Gestirnir áttu fyrsta færið eftir rólega byrjun en Valsmenn skoruðu fyrsta markið eftir 33 mínútur. Guðmundur Benediktsson komst í gegn, lék á markmanninn og sendi boltann fyrir markið þar sem Birkir Sævarsson renndi honum í netið. Stuttu seinna kom góð sending inn fyrir á Dennis Morthensen sem var rifinn niður og víti dæmt. Úr því skoraði Pálmi Pálmason og Valsmenn komnir í 2-0. Eftir markið sóttu gestirnir mjög og tókst sanngjarnt að minnka muninn. Markið reyndist síðasta spyrna fyrri hálfleiksins. Baldur Aðalsteinsson hóf seinni hálfleik með glæsilegu marki úr þröngu færi og kom Val í 3-1, og eftir það gáfust gestirnir í raun upp. Fljótlega eftir það bættu Pálmi Rafn og Dennis hvor við marki og staðan orðin 5-1 eftir 54 mínútur. Gestirnir náðu að minnka muninn í 5-2 á 82. mínútu eftir kæruleysi í vörn Vals. „Það var mjög ánægjulegt að fá þennan leik. Það var margt jákvætt en um leið fullt af hlutum sem við getum unnið betur,“ sagði Willum Þór Þórsson, þjálfari Vals. „Þetta var flott formleg opnun tímabilsins og þeir voru mjög erfiðir mótherjar,“ sagði Atli Sveinn Þórarinsson, fyrirliði Vals, og honum líst vel á framhaldið. „Þetta er allt að koma og æfingaferð til Tyrklands skilaði miklu. Markmiðið er Íslandsmeistaratitillinn.“- rag
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Enski boltinn Styttan af Dwyane Wade fékk nýjan haus Körfubolti Uppgjörið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Körfubolti „Þessi seinni hálfleikur var það besta sem við höfum gert hingað til” Körfubolti Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Fótbolti „Lið sem enginn vill mæta núna“ Körfubolti Uppgjörið: KR - Sindri 107-102 | Seiglan sigraði Sindra Körfubolti Fleiri fréttir „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Sjá meira